Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 64

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 64
sölur á landbúnaðarvörum sem í mörg ár hafa verið stunduð með skipulögðum hætti í Bandaríkjunum. Sama gildir um sölu á olíu. Loks má nefna að innan far- skipageirans hefur lengi tíðkast að tryggja sig fyrir óæskilegri gengisþróun með ákvæðissölu á farmbréfum. Aðalatriði ákvæðissamninga er einmitt oft trygg- ingarverndin sem þeir veita kaupanda og seljanda. 2.4 Staðlaðir ákvæðissamningar (standardiserte terminkontrakter) í Bandaríkjunum komust menn fyrst að því að hagkvæmara væri að staðla ákvæðissamninga svo að unnt væri að kaupa og selja þá á verðbréfamarkaði.15 Voru fyrstu stöðluðu samningarnir þróaðir á grundvelli hins skipulagða mark- aðar með landbúnaðarafurðir í Chicago en hafa síðan breiðst út til annarra heimshluta og taka nú til mun fleiri verðmæta. Mest er vægi þeirra þó innan fjármálageirans. Til eru tvær gerðir staðlaðra samninga, annars vegar framvirkir samningar (forwards) og hins vegai' framtíðarlegir samningar (futurekontrakt- er).16 Framvirkir samningar eru einfaldari að gerð en framtíðarlegir samningar og á samningstíma er aðeins framkvæmt eitt uppgjör á þeim, það er lokaupp- gjör, í stað daglegs uppgjörs og lokauppgjörs eins og þegar unt framtíðarlega samninga er að ræða.17 Algengasta tegund staðlaðra samninga eru framvirkir vaxtasamningar (forward rate agreement) sem venjulega er skammstafað FRA.18 Framtíðarlegir og framvirkir samningar eru að jafnaði staðlaðir þannig að tegund og magn hins undirliggjandi verðmætis svo og verð og afhendingartími er ákveðið fyrir fram í samningnum af hlutaðeigandi kauphöll eða tilboðsmark- aði. Hið eina sem samningsaðilar þurfa að ákveða er því fjöldi samninga, sem þeir hyggjast kaupa eða selja og verð hvers samnings. Stöðlunin hefur þau áhrif að samningurinn öðlast eigið líf. Raunverulega er það því samningurinn, sem menn eru að kaupa og selja en ekki hið undirliggjandi verðmæti. Formlega séð skuldbindur kaupandi umræddra samninga sig þó til að kaupa umsamið magn af hinu undirliggjandi verðmæti á fyrir fram ákveðnu verði og seljandi sig til að afhenda það við því verði sem samið var um.19 Fjárfestir, sem á samning er felur í sér skyldu til að selja hið undirliggjandi verðmæti, er gjarnan sagður hafa skammtímastöðu (short position) en fjárfestir, sem á samning er skyldar hann til að kaupa það, er sagður hafa langtímastöðu (long position). 15 Sjá Zimmer o.fl.: Bedrift, selskap og skatt, bls. 189; Engholm Jacobsen o.fl.: Skatteretten 1, 3. útg., bls. 599; Lodin o.fl.: Inkomstskatt 1,6. útg.. bls. 171: Tivéus. bls. 97 og áfram. 16 Af lögum um verðbréfaviðskipti sést ekki að neinn greinarmunur sé gerður á þessum samnings- tegundum hér á landi. Hugsanlega eru bæði samningsafbrigðin því kölluð framvirkir samningar. 17 Sjá Zinimer o.ll.: Bedrift, selskap og skatt, bls. 190. 18 Sjá Engholm Jacobsen o.fl.: Skatteretten 1, 3. útg., bls. 601. 19 Sjá þó 18. tl. b-liðar 2. gr. laga nr. 99/2000 um breyting á 2. gr. laga nr. 13/1996 um verðbréfa- viðskipti en þar er framvirkur vaxtasamningur skilgreindur svo: „Afleiðusamningur sem kveður á um vaxtaviðmiðun á ákveðnu tímabili og reiknast vextir af fyrir fram ákveðinni grunnfjárhæð sem ekki kemur til greiðslu. Samningurinn er gerður upp á fyrir fram ákveðnum uppgjörsdegi". 212
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.