Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 68

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 68
greiða viðbót eða sæta frádrætti ef vextir umræddra gjaldmiðla eru ólíkir. Þessi viðbót eða frádráttur er ákveðinn um leið og gengisskiptasamningur er gerður og ákvarðast af vaxtamun hlutaðeigandi gjaldmiðla. Við gjaldmiðlaskiptasamn- ing á íslenskum krónum og þýskum mörkurn valda lægri vextir á mörkum en krónum því að greiða þarf álag við endurgreiðslu á krónununr miðað við það spottgengi sem lagt er til grundvallar við gerð samningsins. Hins vegar er þessu öfugt farið ef vextir af mörkum eru hærri en af krónum. Gjaldmiðlaskiptasamn- ingur getur því fært samningsaðilum hagnað eða tap eftir því hvert gengi gjald- miðlanna er þegar samningurinn er gerður. Höfuðtilgangur hans er annars að tryggja aðila ákveðið gengi sem endurgreiða skal lán í erlendum gjaldmiðli á. Dæmi 8. Gjaldmiðlaskiptasamningur. íslenskt fyrirtæki hefur fengið 10 millj. kr. að láni í Þýskalandi til að kaupa skip. Þegar samningurinn var gerður var gengi þýska marksins 35,00 kr. Lánsfjárhæð í íslenskum krónum hefur því verið 350 millj. Til að tryggja sig fyrir dýrara verði á greiðslu lánsins eftir eitt ár vegna hugsanlegrar gengishækkunar þess gerir fyrirtækið gjaldmiðlaskiptasamning við banka sinn urn leið og það tekur lánið. Bankinn yfirtekur því næst lánsfjárhæðina í þýskum mörkum og lætur fyrirtækið fá samsvarandi fjárhæð í íslenskum krónum á genginu 35,00. Þegar samningurinn er gerður eru vextir af íslenskri krónu 7,5 % en af þýskum mörkum 6%. Lánið ber því að endurgreiða á genginu (350 rnillj. x l,075)/( 10 millj. x 1.06) x 10 = 39,88 sem þýðir að álagið, sem greiða ber til viðbótar genginu, er 39,88 - 35,00 = 4,88. Islenska fyrirtækið þarf því að greiða 398,8 millj. fyrir 10 millj. þýskra marka er það fékk að láni. Sé gengi þýska marksins komið í 42 kr. við lok samningstímans leiðir af því 21.175.000 kr. spamað. Er því eftir nokkru að slægjast við gerð slíkra samninga. Sé aðili skyldur að greiða vexti af láni sem skipst er um greiðslu á með ofan- greindum hætti verður skiptasamningurinn sambland vaxtaskipta- og gjald- miðlaskiptasamnings. Við gerð slíks samnings er spottgengið lagt til grundvall- ar bæði við hin upprunalegu skipti á fjárstraumunum og endurgreiðslu lánanna. Tekið er tillit til vaxtamunarins á gjaldmiðlunum við ákvörðun hinna mismun- andi vaxtagreiðslna sem aðilar verða sammála um og þarf því hvorki að bæta við né draga frá við endurgreiðslu lánsins. Oski annar aðili að gjaldmiðlaskipta- samningi að losna við skuldbindingar sínar, áður en vaxta- eða gjaldmiðla- skiptasamningur rennur út, er algengt að fallist sé á það gegn því að sá aðili, sem samningurinn er orðinn óhagstæður, greiði hinum eingreiðslu í þóknun. 2.6 Áskriftarréttur (n. utstedeisesretter, e. warrants, n. fortrinsretter, n. tegningsretter, s. interimbevis og s. delbevis) Áskriftarréttur (n. utstedelsesretter, e. warrants23) er um margt skyldur kaup- vali.24 Gagnstætt kaupvali er hið undirliggjandi verðmæti þó yfirleitt ekki til 23 Enska orðið warrants er ýmist notað í merkingunni áskriftarréttindi eða valréttur. 24 Sjá Zimmer o.fl.: Bedrift, selskap og skatt, bls. 187; Engholm Jacobsen o.fl.; Skatteretten 1, 3. útg., bls. 603-604; Lodin o.fl.: Inkomstskatt 1, 6. útg., bls. 171; Tivéus. bls. 86 og áfram; Stefán Már Stefánsson: Hlutafélög og einkahlutafélög, bls. Í 49-151 og 169-170. 216
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.