Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 73

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 73
samning og er hún því vart framkvæmanleg. Hugsanleg lausn er því að láta skattlagninguna fara allsendis eftir því hverjar afleiðingar hlutaðeigandi samningur hefur í raun. Leiði hann til afhendingar hins undirliggjandi verðmætis ber að beita samsköttun en sérsköttun í öllum öðrum tilvikum óháð því hvort fyrir samn- ingsaðilum hafí vakað að ljúka viðskiptum sínum með mismunargreiðslu við samningsgerðina eða ekki. Við skattlagningu þarf því aðeins að skoða hvort af- leiðusamningur hefur leitt til afhendingar hins undirliggjandi verðmætis eða ekki og er það mikill tímaspamaður fyrir skattyfirvöld. Beri að skattleggja afleiðu sam- an með hinu undirliggjandi verðmæti lýtur hún sömu reglum og það. Svo að dæmi sé tekið skattleggst afleiðan af þeim sökum eins og hlutabréf ef hið undirliggjandi verðmæti er hlutabréf, sem krafa ef hið undirliggjandi verðmæti er skuldabréf o.s.frv. Fari afhending ekki fram og sérsköttun skal beita þarf hins vegar að ákveða hvemig skuli gera upp tekjur af afleiðunni og skattleggja þær. Verður það gert í næstu tveimur köflum. Til grandvallar þeim liggur því að afleiða sé sjálfstæð eign. 3.3 Launatekjur og skyldar tekjur eða fjármagnstekjur í atvinnurekstri fylgja allar tekjur sama tekjuskattsstofni en af því leiðir að skattur af þeim er ávallt hinn sami óháð því af hvaða tegund þær eru.29 Hjá ein- staklingum aftur á móti sæta laun og skyldar tekjur annars vegar og fjármagns- tekjur hins vegar ólíkri skattlagningu. Þannig er skattur af launum og skyldum tekjum eftir atvikum 38,76% eða 43,76% en af fjármagnstekjum 10%. Miklu máli skiptir því að vita hvers eðlis tekjur em af afleiðum sem teljast sjálfstæðar eignir samkvæmt ofansögðu. í skattalögum er fjallað um laun og skyldar tekjur í A-lið 7. gr. en um fjármagnstekjur í C-lið umræddrar greinar. Þessi skipting er þó ekki alveg hrein. T.d. tekur 4. tl. A-liðar 7. gr. SL m.a. til tekna af vinningum í veðmálum sem í eðli sínu em fjármagnstekjur. Einn tilgangurinn með gerð afleiðusamninga er einmitt að veðja á gengishækkun hinna undirliggjandi verðmæta síðar meir og væri því ekki óeðlilegt að líta á afraksturinn sem vinn- ing í veðmáli. Þannig var þessu t.d. farið um ákvæðissamninga í Danmörku áður en lög voru sett um skattlagningu þeirra.30 Skal ekki þvertekið fyrir að svo geti einnig verið hér á landi. Það sem ræður því er þó ekki eðli teknanna heldur uppgjörsmáti. Ákvæði 4. tl. A-liðar 7. gr. SL fjallar um skattlagningu heildar- tekna og er það því umfram allt brúttóákvæði. Um frádrátt frá slíkum tekjum gilda hins vegar ákvæði 3. mgr. 30. gr. SL.31 Takmarkast frádrátturinn við bein- 29 En auðvitað skattleggjast þær með mismunandi hlutfalli eftir þvf hvaða form er á rekstri hlutað- eigandi fyrirtækis. 30 Engholm Jacobsen o. fl.: Skatteretten 1, 3. útg., bls. 625. 31 Akvæði þetta er svohljóðandi: „Hafi maður beinan kostnað við öflun annarra tekna en tekna skv. 1. tl. A-liðs (sic) 1. mgr. 7. gr., án þess að hún verði talin falla undir atvinnurekstur eða sjálfstæða starfsemi, skulu ákvæði 1. mgr. 1. tl. 31. gr. samt sem áður gilda um slfkan kostnað eftir því sem við á, þó ekki ákvæðin um vexti af skuldum, afföll, gengistöp og fyrningu eigna. Kostnaður þessi leyfist eingöngu til frádráttar sams konar tekjum og hann gekk til öflunar á, og má frádráttur hvers árs aldrei nema hærri fjárhæð en sem nemur þeim tekjum sem hann leyfist til frádráttar". 221
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.