Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 76

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Page 76
Áskriftarréttur, sent getur staðið einn, er skyldur valrétti og er því ekki ástæða til að ætla að hann muni verða skattlagður öðruvísi en valrétturinn. Ber því að skattleggja hann sérstaklega sent sjálfstæða eign samkvæmt hagnaðar- kerfi. Sé áskriftarrétturinn tengdur annarri eign, kröfu eða hlutabréfi, raunveru- lega eða réttarlega, er hins vegar vafasamt hvort beita eigi samsköttun eða sams konar skattareglum og gilda um þá eign sem hann er tengdur. Sérstök vandamál geta auk þess komið upp við aðskilnað réttindanna frá þeirri eign sem þau eru tengd þar sem kaupverð þeirra er ekki sérgreint við afhendingu. Við sölu á áskriftarréttindunum þarf því ætíð að spyrja sig hvað hið undirliggjandi verð- mæti hefði kostað ef réttindin hefðu ekki fylgt með og draga svo það verð frá því sem skattaðili greiddi fyrir heildarpakkann. 4. ÁKVÖRÐUN SKATTSKYLDRA TEKNA AF EINSTÖKUM AFLEIÐUM 4.1 Afhending fer fram í 3. kafla var kornist að þeirri niðurstöðu að skattleggja bæri afleiður saman með undirliggjandi verðmæti ef afhending fer fram. Er afleiðan því ekki skatt- lögð sérstaklega þegar svo stendur á. I samræmi við almennar reglur um að koma í veg fyrir tvísköttun bætist kostnaður við hana þess vegna við stofnverð hins undirliggjandi verðmætis og skattleggst samkvæmt sömu reglum og gilda um það sem mismunur á söluverði og upphaflegu kaupverði, sbr. dæmi 11 hér að framan.34 Hagnaður eða tap af sölu eignar, sem keypt hefur verið með af- leiðu, telst því munur á söluverði og upphaflegu kaupverði að viðbættum af- leiðukostnaðinum. Innifalið í söluverðinu eru m.a. hækkun eða lækkun á verð- mæti eignarinnar frá gerð afleiðusamningsins. Með afleiðukostnaði er hins veg- ar aðallega átt við beinan kostnað svo sem þóknun vegna kaupa á kaupvali eða söluvali.35 Á hinum Norðurlöndunum skattleggst munur á söluverði og kaup- verði krafna að jafnaði sem hagnaður eða tap. Hér á landi telst hann hins vegar afföll. Séu hin undirliggjandi verðmæti afleiðu kröfur skattleggjast afleiðutekj- urnar/-gjöldin því sem vextir. Er mikilvægt að hafa þetta í huga vegna þess að mismunandi reglur gilda um skattlagningu söluhagnaðar/-taps og vaxtatekna/- gjalda. Þetta þarf hins vegar ekki að vera svo þegar alhending fer ekki fram, sbr. kafla 4.2 hér á eftir. 4.1.1 Tímafærsla þegar afhending fer fram Hagnaður af sölu eignar telst til tekna þegar kaupsamningur hefur verið 34 Sbr. Engholm Jacobsen o. fl.: Skatteretten 1,1. útg., bls. 549-550. Hér á landi hefur þessi regla hlotið staðfestingu í 3. gr. laga nr. 86/2000 um breyting á 3. málsl. 2. mgr. 17. gr. SL en hún hljóðar svo: „Kaupverð hlutabréfa sem seljandi hefur eignast vegna kaupréttar skv. 8. gr. A skal ákvarðast jafnt gangverði því sem lagt var til grundvallar við ákvörðun tekna samkvæmt því ákvæði". 35 Sbr. 20. gr. SL. 224
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.