Tímarit lögfræðinga


Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 78

Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Side 78
Við gerð samningsins skuldbindur seljandi sig til að selja hlutabréfin og er samningurinn því endanlegur. Þar sem skattleggja ber seljanda eins og hann hafi selt hlutabréf í þessu tilviki telst hagnaður hans mismunur á 200.000 kr. söluverði bréfanna og 150.000 kr. markaðsverði við gerð ákvæðissamningsins eða raunverulegu kaupverði hans hafi hann átt bréfin fyrir.41 Af sölu hlutabréf- anna telst hann því hafa að lágmarki hagnast um 50.000 kr. í tekjur. Eigi seljandi ekki bréfin þarf hann að afla þeirra og er það venjulega gert með því að gera kaupvalssamning við annan aðila sem veitir seljanda rétt til að kaupa sams konar hlutabréf. Við það verður hann fyrir kostnaði og er venjulegt að kaupandi greiði hann í formi sérstaks ákvæðisálags (d. terminstillæg, e. basis eða cost of cairy) til viðbótar við hlutabréfin.42 Ákvæðisálagið telst því til sölu- verðs hjá seljanda og kaupverðs hjá kaupanda. Tryggi seljandi sér kaup á hlutabréfum í ofangreindu dæmi á genginu 150 til afhendingar 1. mars með valréttinum helst skattlagning hans óbreytt. Sérstök vandamál geta hins vegar komið upp hafi gengisbreyting orðið í millitíðinni. Þannig má telja víst að hann skuldi ríkinu skatt ef gengið er lægra en á móti á hann inni hjá því ofgreiddan skatt ef gengið er hærra.43 í báðum tilvikum er því óhjákvæmilegt að endurákvarða skatta seljanda og er það erfitt verk. Við lög- festingu sérreglna um ákvæðissamninga er því almennt kveðið svo á að hagnað eða tap af þeim beri að gera upp sem sjálfstæðar eignir við afhendingu. 4.2 Afliending fer ekki fram 4.2.1 Almennt Enn fremur var það niðurstaða í 3. kafla að skattleggja beri afleiðu sér sem sjálfstæða eign samkvæmt hagnaðar-/tapskerfi ef afhending hins undirliggjandi verðmætis fer ekki fram. Er afleiðan þess vegna gerð upp sérstaklega þegar svo stendur á, óháð hinu undirliggjandi verðmæti og í því sambandi er eingöngu horft til hinna raunverulegu lykta hlutaðeigandi samnings. Verður nú athugað hvernig gera beri upp tekjur af einstökum afleiðusamningum hjá útgefanda/selj- anda og eiganda/kaupanda. Þessu næst verður svo skattlagningin skoðuð. 4.2.2 Valréttur, almennir ákvæðissamningar og áskriftarréttur Ákvörðun skattskyldra tekna, það er hagnaðar og taps af valrétti, telst munur á söluverði (utgangsverdi) og kaupverði (inngangsverdi). Eins og endranær telst söluverð eiganda kaupverð útgefanda og kaupverð eiganda söluverð útgef- 4] í þessu sambandi er horft fram hjá hugsanlegu ákvæðisálagi vegna kaupvals á sams konar bréfum hafi ákvæðissali ekki átt hlutabréfin fyrir. 42 Sbr. bls. 211 hér að framan. 43 Þegar þessi vandamál eru virt er skiljanlegt hvers vegna Danir settu það skilyrði fyrir sam- sköttun í þessu tiiviki í Betænkning nr. 1139/1988 ont Beskatning af ftnansielle instrumenter að seljandi ætti hlutaðeigandi eign þegar ákvæðissamningur er gerður. 226
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116

x

Tímarit lögfræðinga

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tímarit lögfræðinga
https://timarit.is/publication/586

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.