Tímarit lögfræðinga - 01.10.2001, Síða 87
mennar reglur um launahlunnindi. Að því er varðar skattlagninguna hjá hluta-
félaginu gildir hið sama og um þóknunina að ofan. Er það bagalegt vegna þess
að yfirgnæfandi líklegt er að ávallt sé tap á hlutabréfavalsréttarsamningum
starfsmanna. Er því einnig fullkomin óvissa um frádráttarbærni þess, sbr. þó
almenna hlutann hér að framan.57 Þar sem um er að ræða launahlunnindi væri
ekki óeðlilegt þótt fyrirtæki væri heimilt að gjaldfæra mismuninn sem rekstrar-
kostnað.58
Fullnægi kaup starfsmanns á hlutabréfum með valrétti skilyrðum 8. gr. B SL,
skattleggst munurinn á gangverði og valréttarverði hlutabréfanna ekki sem laun
heldur sem fjármagnstekjur.59 Verður nú fjallað nánar um skilyrði þessi.
9.2.2 Fjármagnstekjuskattlagning
Til að heimilt sé að skattleggja mismun á gangverði og valréttarverði sem
fjármagnstekjur hjá starfsmanni þarf að fullnægja eftirfarandi skilyrðum:
Aætlun uni kauprétt. Staðfesting ríkisskattstjóra
Hlutafélagi, sem hyggst gefa starfsmönnum sínum kost á að kaupa hlutabréf
í sér samkvæmt kauprétti með fjármagnstekjuskatti, ber að semja kaupréttar-
áætlun og senda hana ríkisskattstjóra til staðfestingar áður en farið er að
framkvæma hana. Kaupréttaráætlun skal innihalda ákvæði um eftirfrandi atriði:
Umfang. Kaupréttur að hlutabréfum verður að ná til allra starfsmanna í hlut-
aðeigandi félagi og skulu þeim fylgja sömu réttindi og öðrum hlutabréfum eða
hlutum félags.60 í samning um kaup á hlutabréfum samkvæmt kauprétti er því
ekki heimilt að setja ákvæði sem takmarka réttindi starfsmanna umfram það
sem leiðir af hlutafélagalögum hverju sinni. Hins vegar er ekkert því til fyrir-
stöðu að hlutafélag geri þá kröfu að starfsmaður hafi starfað hjá því í ákveðinn
lágmarkstíma áður en hann getur nýtt sér kauprétt sinn, sbr. og það sem segir
um hámarksfjárhæðina hér á eftir.
Starfsmenn í föstu starfí. Einungis starfsmenn í föstu starfi hjá hlutafélagi
eða öðru félagi í sömu félagasamstæðu geta þó nýtt sér réttinn. Með starfsmanni
er eins og venjulega átt við launþega, það er mann sem ráðinn er til starfa hjá
umræddum aðilum gegn föstum mánaðarlaunum o.s.frv. Sjálfstætt starfandi
menn, svo sem verktakar og aðrir slrkir, geta því ekki nýtt sér heimildina. Sama
57 Sjá þó 3. málsl. 3. mgr. 8. gr. B SL er hljóðar svo: „Sá mismunur telst ekki til rekstrarkostnaðar
í skiíningi 31. gr. laganna".
58 Eins og reyndar mun gert, sbr. auglýsingu RSK nr. 10/1999.
59 í 8. gr. B SL er ekki skilgreint hvers konar tekjur það eru er manni hlotnast við kaup á
hlutabréfum samkvæmt kaupréttarsamningi. I eðli sínu er þó um að ræða laun en af því leiðir að
ekki er unnt að draga tap af sölu hlutabréfa frá þeim.
60 Svo breytt með a-lið 2. gr. laga nr. 149/2000.
235