Búnaðarrit - 01.12.1919, Blaðsíða 8
230
BTJNAÐARRIT
indi húsa. Stríðið og kola-dýrtíðin hefir vakið þá Norður-
landabúa, til þess að fara alvarlega að hugsa um þetta
byggingamál og sýnt þeim, að flest hús eru köld og illa
gerð í samanburði við það sem vera mætti. Skólinn í
Þrándheimi hafði sótt um fje til Stórþingsins til þess að
rannsaka útveggjagerð. Hann fór fram á að fá 100,000
kr. til þessa. Stórþingið veitti fje þetta, en ekki orða-
laust, heldur fylgdi það með, að hjer væri um svo
mikið nauðsynjamál að ræða, að skólinn gæti fengið svo
mikið fje sem hann vildi!
Mjer kom ósjálfrátt til hugar, að Stórþingið liti öðru-
vísi á þetta mál en Búnaðarþingið síðasta, sem ekki
vildi verja nokkrum hundruðum króna til þess að halda
áfram tilraunum með endurbætur á tróðveggjunum.
Það sem sjerstaklega hafði vakað fyrir próf. Bugge
var, að gera nákvæmar tilraunir með þá veggjagerð, sem
tíðkaðist í landinu, og þær tilbreytingar á henni, sem
gerðar höfðu verið hingað og þangað. Hafði hann látið
gera fjölda smáhúsa, sem voru að vísu með venjulegri
hæð, en einar 2 stikur að innanmáli á hvern kant. Var
sín gerð á veggjum hvers húss. Inn í kofa þessa átti
síðan að setja rafmagnsofna, hita- og rakamæla og
önnur áhöld, til þess að geta reynt húsin. Skyldi at-
huga hita, raka o. þvíl. á degi hverjum f vetur, en ofn-
arnir lögðu hnífjafnan hita til í öllum kofunum. Ætti þá
að vera fljótsjeð hver veggjagerðin reynist hlýjust, en
annars var ætlast til, að húsin væru látin standa árum
saman, svo nokkuð mætti marka endingu o. þvíl. Jeg
set hjer nokkur dæmi þess, hversu veggir voru gerðir:
1. Óholur múr: IV2 múrsteinn á þykt. Ytri steinarnir
úr harðbrendum leir, innri úr hálfbrendum.
2. Holmúr: 1' steinn yst, holrúm = V1 2 3 4 steinn, en innst
V2 steinn. Steinbönd þjett. Verk mjög vandað.
3. Sama gerð, en verk miður vandað.
4. Holmúr: 1 steinn + holrúm = x/2 steinn + 1 steinn.