Búnaðarrit - 01.12.1919, Blaðsíða 32
254
BÚNAÐARRIT
Bilið á milli raðanna er gert ráð fyrir að sje ekki minna
en 5 metrar og básabreidd 1 meter.
Básarnir sjeu aðgreindir með sterkum slám, er hallist eins
og sýnt er á uppdrættinum.
Rjettir, eins og þær sem hjer er gert ráð fyrir, taka 100
kvendýr og 50 karldýr á bása, en vitanlega má liafa rjett-
irnar minni eða stærri án þess að fyrirkomulagið raskist, með
því að stytta eða lengja raðirnar.
b) Rjettir fyrir sauðfjo:
Teikningin skjrir sig að mestu sjálf, það skal að eins tekið
fram, að minni hólfin eru ætluð fyrir einstök dýr, en hin
stærri fyrir flokka.
Heppilegast mun að sjálfsögðu að byggja rjettirnar úr
timbri, en þar eð verð á því er nú sem stendur ðeðlilega
hátt, þá vil jeg ekki gera neina kostnaðaráætlun í sambandi
við teikninguna.
Vildi að eins að síðustu endurtaka það, a ð b ú f j á r r æ k t
vor þarf að taka skjótum framförum, of land-
búnaðurinn íslenski á að geta staðist sam-
keppni framtiðarinnar við aðra atvinnuvegi.
En eitt áhrifamesta meðalið er við þekkjum í þá átt, eru:
tíðar og vel settar búfjársýningar, stjórnað af
sjerfróðum mönnum.