Búnaðarrit - 01.12.1919, Blaðsíða 65
BÚNAÐARRIT
285
Á Rangárvöllum átti Guðmundur Þorbjarnarson, Hofl,
hrútinn með fyrstu verðlaun, og keypti hann af bárð-
dælska fjenu í Odda. — í Hvolhreppi átti Sæmundur
Oddsson, Garðsauka, hrútinn er fjekk fyrstu verðlaun, og
er hann líka frá Odda. — Sigurður Einarsson, Sáms-
stöðum, átti hrútinn í Fijótshlíðinni, og var hann keyptur
frá Tungufelli í Hreppum. — Þorbjörn Þorvaldsson í
Núpakoti átti hrútinn undir Fjöllunum, og hafði keypt
hann frá Þorláki Jónssyni á Kirkjuferju í Ölfusi; en hann
á þingeyskt fje. — í Hvammshreppi átti Magnús Finn-
bogason í Reynisdal, 1; Páll Ólafsson, Heiði, 1; Guð-
mundur Guðmundsson, Yík, 1; Einar bóndi í Kerlingar-
dal, 1; og Jón, bóndi í Hvammi, 1. — Voru þessir hrútar
flestir af Dalakyninu. En hrútur Einars var frá Lárusi
Helgasyni á Klaustri.
Jeg hefl svo oftlega, bæði í ræðu og riti, skýrt tilgang
þessara sýninga, að jeg fæ mig ekki til að fjölyrða um
það að þessu sinni. En þar sem þetta var mín síðasta
ferð um þetta svæði í þessum erindum, finn jeg mjer
skylt að senda öllum þeim, er vel hafa tekið undir mál
mitt og erindi, mína þökk og kveðju.
15. nóv. 1919.
Jón H. Þorbergsson,