Búnaðarrit - 01.12.1919, Blaðsíða 61
BÚNAÐ ARRIT
281
Árið 1912 . . . . vættir.
1914 . . . . —
— 1915 .... —
— 1916 .... . . . . 2178029 —
— 1917 .... . . . . 1806516 —
— 1918 . . . , . . . . 1614625 —
Sjest af þessari töflu, að innflutnÍDgurinn af smjöri
hefir síðan 1912 minkað alt að f’/», eða um meira en
helming. Seinustu árin tvö, hefir ekkert verið flutt af
smjöri til Englands frá Rússlandi (Síberíu) og Svíþjóð,
lítið frá Danmörku, móts við það, sem áður var, og eins
frá Frakklandi og Hollandi. — Fyrir ófriðinn var tiltölu-
iega mest af smjörinu, er til Englands kom, frá Dan-
mörku, eða um 40—45%. En 1918 nam það að eins 5—6%.
Hins vegar hefir innflutningur smjörs til Englands
aukist frá Bandaríkjunum, Argentínu og Kanada. En
sú aukning er hverfandi, í samanburði við það smjör,
er kemur þarna til frádráttar.
Yerði það nú ofan á, sem gert er ráð fyrir, og talið
enda víst, að innflutningur af smjöri til Englands vaxi
á næstu árum, og verði svipaður og áður, þá má óhætt
vona það, að unt verði eftirleiðis, að selja smjör hjeðan
þangað, jafnvel strax á næsta sumri. — En þá er nauð-
synlegt fyrir smjörbúin, og einkum „Smjörbúa-samband
Suðurlands", að setja sig sem fyrst í samband við þekta
smjörkaupmenn í Englandi um sölu á smjöri hjeðan.
Ættu búin, eða Sambandið, að leita aðstoðar Búnaðar-
fjelags íslands, eða landsstjórnarinnar, í þessu efni, ef
þess virtist þörf.
Vænti jeg nú þess, að þeir sem smjörbúunum eru
hlyntir, láti þetta mál til sín taka. Hjer verður að hefj-
ast handa, og það fyr en seinna, ef vel á að fara.
Áfram með smjörið, góðir hálsar!
Sigurður Sigurðsson.