Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 24
246
BÚNAÐARRIT
— viljugur, fótfimur, þolinn og sterkur — fer meira
eftir góðri byggingu, sem er í samræmi við störf þau,
sem honum er ætlað að vinna, en eftir hæð hans eða
stærð. Og stærðin, tekin út af fyrir sig, er ekki fólgin
í hæð hestsins einni saman, heldur líka i því, hve gildur
hann er og vöðvamikill, því af þessu stafar þungi hans
eigi síður en af hæðinni; en þunginn eykur dráttar-
hæfið, að öðru jöfnu, á hægum gangi. Öðru máli gegnir
um þungann þegar til reiðhestsins kemur eða þeirra
hesta, sem ætlað er að draga Ijett æki á hraðri ferð.
Á þeim hestum er tiltölulega mikill þungi ókostur.
Slíkir hestar þurfa þvert á móti að vera Ijettilega bygðir,
miðað við hæð, en taugastyrkir, beinagóðir og vöðva-
stæltir þurfa þeir að vera, til þess að styrkleikinn sje
nógur, þótt vöðvarnir sjeu minni að fyrirferð en á
dráttarhestinum, sem ætlað er að draga á hægri ferð.
Þetta og fjölmargt annað, sem snertir byggingu hestsins,
og samræmi byggingarinnar við starfskröfur þær, sem
honum er ætlað að fullnægja, verða menn að gera sjer
Ijóst, ef verulegra umbóta má vænta í hrossaræktinni.
En út í slíkt verður hjer ekki frekar farið.
Jeg hefi að eins bent á þessi atriði í hrossaræktinni
til að sýna, hve skamt vjer erum komnir áleiðis í henni,
og til þess þá jafnframt að benda örlítið á hvers vegna
aðgreina þarf reiðhesta og ijettdrættishesta frá þung-
drættishestum, og rækta hvora fyrir sig, ef vel á að
fara, og góðum reiðhestum á ekki að fara fækkandi.
En slíkt hlýtur að vera í aðsigi, sje því haldið áfram
að gera enga aðgreiningu milli reiðhesta og dráttar-
hesta, og kappkosta mestmegnis eða eingöngu að auka
hæð hestanna eða stærð þeirra. Og mjer er ekki grun-
laust um, að þeim kunni jafnvel fremur að hafa farið
fækkandi en fjölgandi síðustu árin.
En þó vjer sjeum skamt á veg komnir í hrossarækt-
inni, þá hygg jeg þó, að þegar alt er vel athugað, þá
verði það uppi á teningnum, að með sanni megi segja,