Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 42

Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 42
3ÚNA0ABRIT Smjörbáa-starfsemin. Smjörbúin hafa átt við ramman reipi að draga nú um skeið, enda hefir starfsemi þeirra hnignað mjög undanfarin ár, og sum búin hætt að starfa og lagst alveg niður. Eins og kunnugt er, var fyrsta smjörbúið stofnað árið 1900. Næstu árin á eftir fjölgaði þeim tiltölulega fljótt, og starfsemi þeirra og rekstur tók skjótum fram- förum. Smjörverkunin breyttist mjög til batnaðar, og smjörið íjekk orð á sig á enska markaðinum. Búin stóðu með mestum blóma árin 1905—1912. — Árið 1905 störfuðu 33 bú, og þá voru flutt út 140 þús. kg. af smjöri. Færði þá almenningur frá. Stærstu smjör- framleiðendurnir fengu þá 400—600 kg. af smjöri í hlut eftir sumarið frá búunum. — Eitt sumarið, 1904 eða 1905, átti Þorsteinn Thorarensen á Móeiðarhvoli um 600 kg. Skúli læknir Árnason í Skálholti 550 kg. Grímur hreppstjóri Thorarensen í Kirkjubæ og Ágúst dbrm. Helgason í Birtingaholti annað eins. Sigurður Guðmundsson frá Selalæk (þá í Helli) 500 kg. Jón Jóns- son, bóndi á Syðra-Seli, og Runólfur hreppstjóri Hall- dórsson á Rauðalæk annað ein3 o. s. frv. Árið 1910 störfuðu einnig 33 bú, og nam þá útfiutta smjörið 150 þús. kg. Var þá smjörið frá einstökum bændum svipað og verið hafði 1905, en einlægt bættust menn við í búin. — Og árið 1912 eru flutt út 177 þús. kg. af smjöri, og það hefir útflutt smjör orðið mest.

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.