Búnaðarrit

Volume

Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 55

Búnaðarrit - 01.12.1919, Page 55
BtfNAÐARRIT 275 allar árar væru lagðar í kjöl. Það sem hjer veldur mestu um, er skortur á Dógu öflugum og eindregnum sam- tökum. Par sem eru kúabú — 4—10 kýr í fjósi, og fleiri —• eins og víða er á SuðurlandsundirlendÍDu, og sumsstaðar annarsstaðar á landinu, þar ættu smjörbúin að geta þrifist, þrátt fyrir það, þó ekki sje fært frá. Þannig ætti búið í Ölfusinu (Yxnalækjarbúið), búin í Flóanum, búið á Skeiðunum og búin í Hrunamannahreppi (Áslækjar- og Birtingaholts-búið) að geta haldið áfram að starfa, þótt hætt yrði að færa frá í þessum sveitum; enda býst jeg við, að þessum búum flestum, sje minni hætta búin, en ýmsum öðrum. — Búið í Biskupstungum er við líði, og legst vonandi ekki niður. Um flest búin í Rangárvallasýslu er svipað að segja, þar á meðai Fijótshlíðarbúið og Rangárbúið, annaðhvort þar sem það er nú eða á öðrum stað. Þessi tvö síðast- nefndu bú hafa að vísu ekki starfað 2 undanfarin sumur, og að eins stuttan tíma 1917, en það sannar ekkert um það, að þeim sje ekki lífs auðið i framtíðinni, ef ekki brestur áræði og fjelagsskap. í þessum sveitum, sem búin eru í, og að þeim liggja, er nægur kúafjöldi til þess, að þau geti starfað. — Eins er það með Hofsár- búiö undir Eyjafjöllum og Deildárbúið í Mýrdalnum í V.-Skaftafellssýslu. Grímsnesingar og Laugdælir — þar eru smjörbúin lögð niður — gætu sameinað sig um eitt bú á hent- ugum stað. Þá hefl jeg aldrei getað skilið það til fulls, hvers vegna að búin í Borgarfirði (Geirsárbúið, Gufárbúið og Laxár- bakkabúið) urðu að hætta. Mjer virðist flest mæla með því, að þau bú hefðu átt að geta þrifist. En reyndín varð önnur, og um það þýðir ekki að sakast. Það er komið sem komið er. í Eyjafjarðarsýslu og Skagafirði eru víða það stór kúabú, að halda hefði mátt þar við rekstri smjörbús,

x

Búnaðarrit

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.