Búnaðarrit

Árgangur

Búnaðarrit - 01.12.1919, Síða 62

Búnaðarrit - 01.12.1919, Síða 62
BÚNABARBiT Hrútasýningar 1919. Svo var til ætlast, að sýningar yrðu á þessu hausti á svæðinu frá Smjörvatnsheiði að Hellisheiði. Austan- lands fjellu þær niður vegna þess, að mann vantaði til að stjórna þeim, og í Vestur-Skaftafellssýslu, austan Mýrdalssands, var ekki hugsað um þær, vegna undan- farandi harðinda. í sex sveitum Árnessýslu fórust sýn- ingarnar fyrir, mest vegna annríkis bænda við rekstur sláturfjár til Reykjavíkur. Ýmiskonar forföll önnur höml- uðu því, að sýningarnar yrðu eins vel sóttar í sveitun- um, eins og æskilegt hefði verið, og eins og bændur vildu þó gjarnan. Margir vildu ekki sýna af þeirri ástæðu, að þeir töldu sig ekki eiga nógu góða hrúta. Víða fjölmentu menn á sýningarnar, þótt þeir ekki sýndu, og lýsir það auknum áhuga. Fjeð er að batna á þessu svæði — sem víða annars- staðar — svo að miklu munar. Þegar jeg fyrir 6 árum ferðaðist þarna fyrst um, fann jeg að eins einn hrút, er átti fyrstu verðlaun, en i haust voru sýndir 27, er hlutu þau verðlaun; virðist önnur framför eftir því, er fjenu við kemur. Einna mestar eru framfarirnar í Árnessýslu, enda eru þar tvær fjárættir, er talsvert kveður að til kynbóta. Er önnur þeirra frá Kárastöðum í Þingvallasveit, en hin frá Þorsteini í Langholti í Flóa, en mun vera þingeysk að uppruna. í Rangárvallasýslu hefir engin ætt merkt sig

x

Búnaðarrit

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Búnaðarrit
https://timarit.is/publication/595

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.