Hlín - 01.01.1917, Síða 12
io
Hlin
Lagabreytingar.
Breytingartillögur við lögin skulu komnar til stjórnar-
innar 4 mánuðum fyrir ársfund.
Stjórnin tilkynnir fjelögum og fjelagasamböndum, sem
í S. N. K. eru, tillögurnar fyrir árstund, ef hægt er.
Ef 2/3 mættra fulltrúa gefa þeim atkvæði sitt á ársfundi,
verða þær að lögum.
Fundargjörð.
Með því kvennafundurinn á Akureyri 1914 markar
stefnu Sambandsfjelagsskaparins norðlenska, sem af er,
leyfum vjer oss að birta þá fundargerð í heild:
Kvennafundur fyrir Norðurland var haldinn á Akureyri
17.—21. júní 1914. Á fundinum mættu 17 konur úr
Þingeyjarsýslu, 26 konur úr Eyjafjarðarsýslu og 30—40
konur úr Akureyrarkaupstað. Fundinn sátu að jafnaði
60—70 konur.
Halldóra Bjarnadóttir, forstöðukona barnaskólans, setti
fundinn í umboði þeirra kvenna, er boðað höfðu til
fundarins. Kosin fundarstýra: Anna Magnúsdóttir, Akur-
eyri. Skrifarar: Vjedís Jónsdóttir og Rannveig H. Líndal.
Þessi mál voru á dagskrá fundarins:
1. GarÖyrkja.
Framsögu hafði: Rannveig H. Líndal.
í þessu.máli voru samþyktar svohljóðandi tillögur:
1. „Fundurinn skorar á norðlenskar konur, að þær
vinni að því af fremsta megni, að komið verði upp mat-
jurtagarði ásamt trjáreit á sem flestum heimilum, af því
vel stunduð garðyrkja er til nytsemdar og prýði á hverju