Hlín - 01.01.1917, Side 13
Hlin
11
heimili, og umsjón hennar og útbreiðsla ætti sjerstaklega
að vera hlutverk konunnar.“
II. „Fundurinn skorar á konur á Akureyri að hlynna
að og styrkja Lystigarð bæjarins með því annaðhvort að
taka reiti til umhirðingar eða vinna þar dagsverk ókeyp-
is.“ (30 konur buðust þegar til að taka að sjer vinnu í
garðinum.)
III. „Fundurinn skorar á Ræktunarfjelag Norðurlands
að Jilutast til um, að kona sú, er hefur styrk frá fjelag-
* inu til garðyrkjunáms erlendis, í því skyni að taka að
sjer garðyrkjuna við Tilraunastöð fje'lagsins, verði að
loknu námi fengin til að leiðbeina konum norðanlands í
garðyrkju og meðferð matjurta til manncldis."
Þennan dag skoðuðu fundarkonur Lystigarðinn, Trjá-
ræktarstöðina og Tilraunastöð Ræktunarffelagsins.
2. Mentamál kvenna.
Framsögu hafði: Unnur Jakobsdóttir, Hólum.
Umræður lutu aðallega að verklegri mentun kvenna,
með því almennur kennarafundur var haldinn síðar sama
dag.
Svohljóðandi tillögur voru samþyktar í málinu:
I. „Fundurinn leggur það tif, að 7 kvenna nefnd verði
kosin til að undirbúa húsmæðraskólamálið rækilega fyrir
Alþingi 1915.“
II. „Fundurinn leggur til, að hver sýsla á Norðurlandi
og Akureyrarkaupstaður kjósi eina konu í nefndina, sem
starfar að húsmæðraskólamálinu."
3. Hjúkrunarmál ug sjúkrasamlög.
Framsögu höfðu: Anna Magnúsdóttir og Sigríður |óns-
dóttir, Akureyri.
„Fundurinn skorar á norðlenskar konur að beita sjer
eftir megni fyrir hjúkrunar- og sjúkrasamlagsmálinu og
reyna að koma því til leiðar, að lærð hjúkrunarkona verði
í hverri sveit.“