Hlín - 01.01.1917, Síða 48
46
Hlirr
þetta tiltekið til dæmis um hve margháttaðar sóttir geta
kvíslast út frá einni. En ástæðurnar til faraldursins eru
þær, að bakteríur þær, sem valda fingurmeinum, geta
valdið margskonar annari bólgu og ígerðum víðsvegar í
líkamanum, en hinsvegar geta fingurmein hlotist af sýk-
ingu af bakteríum, er stafa úr bólguígerðum annarstað-
ar. — Slíkar bólgufarsóttir geta komið upp á hverju
heimili, en magnaðastar verða þær venjulega þar sem
mjög er áfátt þrifnaði og óvarlega farið með útferð úr
sárum. A fiskiskipum kemur það mjög oft fyrir, að hver
af öðrum fá fingurmein, kýli og ígerðir. Þar er það mik-
ið að kenna því, að hásetar eiga mjög erfitt nreð að gæta
þrifnaðar. Bæði ern káeturnar þröngar, dinrmar og
sjaldan ræstar senr skyldi, og þar á ofan bætist að vatn
til þvotta er af mjög skornum skamti, en sjórinn ekki
hentugur til húsræstingar. Auk þess er höndunr sjó-
mannanna hætt við sprungum og kumlunr. — Áður fyr
voru sjúkralrús illræmd fyrir það, hve bólga og ígerðir
voru algengar eftir alla holskurði. Þá vissu nrenn ekki
af hverju það stafaði. Nú vitunr við að það var að kenna
ígerðarbakteríunr, senr nrenn þá kunnu ekki að varast.
En nú kunnum við að koma þeinr fyrir kattarnef með
sótthreinsunarlyfjum og ítarlegu hreinlæti. í öllum greftri
og útferð úr sárunr úir og grúir af ígerðarbakteríum.
Þess vegna verður að fara jrrifalega með alt það sótt-
næmi. Umbúðir, senr ataðar eru af útferð, þarf annað-
hvort að brenna eða leggja í bleyti í sótthreinsunarlyfi,
t. d. kreoh'nvatni eða kresólsápulegi (3%) og síðan sjóða,
og sá sem leysir til sára og ígerða, þarf að viðhafa nresta
hreinlæti og þvo sjer um hendur á undan og eftir úr sótt-
hreinsunarlegi. Sjúklingurinn þarf að sofa sjer í rúmi,
snerta sem minst við öðrum og ekki fást við matreiðslu;
en mikil vörn er það að hafa góðar umbúðir um sárin.
Að afstöðnum veikindunum er best að láta sótthreins-
unarmann sótthreinsa heimilið með fyrirsögn læknis.
Maga- og garnakvef er algeng næm veiki, en jrað er