Hlín - 01.01.1919, Qupperneq 15
Hlin
15
Kvenfjelag Siglufjarðar.
Kvenfjúelagið „Von“ á Siglufirði er tæpra tveggja ára.
Það var stofnað 31. okt. 1917, aðallega fyrir forgöngu
frú I. Tynes. Stofnendur voru 42, en nú telur fjelagið
rúma 70 meðlimi. Markmið þess er: að efla samvinnu
meðal kvenna, styðja framfaramál sveitarinnar og stvrkja
bágstadda.
Þessi tvö ár, sem fjelagið hefur stariað, hafa verið
Siglfirðingum fremur óhagstæð: afli brugðist mjög, og
margur því átt örðugra en ella. Þess vegna hefur fjelagið
mestmegnis snúið sjer að hjálparstarfseininni enn sem
komið er. Báða veturna hefur það útbýtt fötum á um
20 heimili fyrir jólin, nokkuð á annað lmndrað flíkum í
hvert skil'ti. Það hafa fjelagskonur sauinað alt sjálfar, að
mestu leyti úr nýjum efnum, en nokkuð líka úr gömlu.
í vetur gaf fjelagið 20 fátækum börnum miðdegismat í
2 mánuði: febrúar og mars. Fátækar sængurkonur fæðir
það altaf. 4 sjúklinga hefur það styrkt á spítala. — Komið
hefur til tals, að fjelagið fengi sjer fasta hjúkrunarkonu,
en ekki hefur orðið úr því enn. í surriar styrkir það stúlku
á garðyrkjunámsskeið í Grðrarstöðinni á Akureyri gegn
því að sitja fyrir vinnu lrennar næstu tvö sumur. Hefur í
því skyni verið fenginn blettur til ræktunar. Báða vet-
urna hefur fjelagið liaft jólatrje fyrir börn.
Fundi lieldur fjelagi einu sinni í mánuði, og að vetr-
inum koma fjelagskonur saman að minsta kosti einu sinni
í mánuði til að skernta sjer á ýmsan hátt: við kaffidrykkju,
leiki, söng, upplestur — og stundum hafa verið flutt frum-
samin erindi.
G. A. B.