Hlín - 01.01.1919, Qupperneq 27
Hlin
27
uði fyr. En þessi blómasýning sannar það, að margt fallegt
er hægt að rækta hjer norður í kuldanum, bæði úti og
inni, ef alúð og nákvæmni lialdast trúlega í liendur.
Að sýningunni lokinni voru blómvendir og matjurtir
boðin upp og seld dýru verði, sjerstaklega girntust menn
blómin. T. d. voru einn og tveir gullfíflar seldir á 2—3
krónur. Einn lítri af jarðarberjum úr Gróðrarstóðinni
seldist á 25 krónur.
Aður en jeg lýk línum þessum, sem rúmsins vegna
eru miklu færri en jeg liefði viljað, vil jeg fyrir liönd
allra þeirra, sem óska I.ystigarði Akureyrar góðrar fram-
tíðar, þakka öllum þeim konum, 'sem unnið hafa í þarfir
þessa málefnis. Sjerstaklega vil jeg þó nefna frú Önnu
Schiöth, sem þrátt fyrir sinn háa aldur hefur unnið mest
allra fjelagskvenna að framgangi málsins, bæði í orði og
verki. — Ef einhvern tíma kemur að því, að rakin verði
saga Lystigarðs Akureyrar, verður frú Önnu Schiöth sjer-
staklega minst, því hún hefur lagt hyrningarsteininn und-
ir þetta verk.
Har. Björnsson.
Heimilisiðnaður.
Iðnsýningin á Húsavík.
Iðnsýning og kvennafundur! Á jrað ekki vel saman?
Svo fanst okkur heimilisiðnaðarvinum, og því rerum við
að því öllum árum, að sýningin kæmist á í vor á Húsa-
vík.