Hlín - 01.01.1919, Qupperneq 49
Hlin
49
Heimilið.
Erindi flutt á kvennafundi á Akureyri 1918
af Kristinu Matthiasson.
Af öllum þeim málefnum, sem við konur þurfum að
ræða, þegar við komum sarnan, er heill heimilisins það,
sem nær til flestra. Það eru svo margar okkar, sem höf-
um það aðalstarf að vinna fyrir lieimilin. Þess vegna er
það skylda okkar að athuga, livort fyrirkomulag þeirra
sje það hentugasta, sem orðið getur, eða hvort þörf sje á
að bæta það að einhverju leyti.
Heimilið á að vera hvíldarstaður. Þar á hver og einn
að fá að njóta sín til fulls. Barnið á þar að fá sinn eðli-
lega þroska, sá fullorðni á þar að njóta lífsins, hvergi eins
og þar.
Við erum hjer í heiminum til þess að vinna hver Ivrir
annan og fyrir mannkynið í heild sinni, og til þess að
þroska okkur sjálf eftir upplagi hvers og eins. Gott heim-
ili stuðlar að livorutveggja. F.n eins og nú hagar til eru
ýmsar skaðlegar venjur því til fyrirstöðu, að lieimilin sjeu
svo góð sem þau ættu að vera.
Amerísk kona ein, Ch. P. Gilman að nafni, hefur rit-
að bók um þetta efni. Svo hafa og gert fleiri rithöfundar
á seinni árum. Langar mig til að skýra frá nokkrum af
tillögum frú Gilman ásamt fleiru, sem jeg lief lesið um
það efni. Margt af því á erindi til okkar; að minsta kosti
er þetta umhugsunarvert mál.
Frú Gilman sýnir fram á, að heimilisfyrirkomulaginu
þurfi að gerbreyta, til þess að það samsvari tilgangi sín-
um. Flún heldur því fram, að heimilið, eins og það er
nú, Iiafi óheppileg áhrif á sálarþroska konunnar, manns-
ins þar af leiðandi líka. Konan hefur um of verið bund-
in við að sjá um líkamlegar þarfir manns og barna, en við
verðnm aðmuna, að maðurinn er andleg vera engu síður
en líkamleg.
á