Hlín - 01.01.1919, Page 70

Hlín - 01.01.1919, Page 70
70 Hlin urvegurum, því það eru þeirra bestu menn. Gamalt orð- tak segir: „Fáir eru iöðurbetrungar“, en þessir menn eru það, og þeim er það að þakka, að heiminum er að fara i'ram, þó hægt fari, því eins og Stuart Mill segir: „Hve mikið varið er í þjóðirnar fer eftir því, hve mikið er varið í hvern einstakling.“ — Nú, nú, hinir aftur á móti, sem ekki hugsa unt annað en þjóna lund sinni og brjót- ast um á hæl og hnakka, til að fá jafnvel lieimskulegustu óskir sínar upþfyltar, þeir hlynna með velþóknun að eit- urfræjunum í eðlisfari sínu, þangað til þau eru orðin svo þroskuð, að þau eru vaxin þeim yfir höfuð og verða ekki kæfð, því það er staðreynd, að því meir sem menn láta eftir tilhneigingum sínum, þess heimtufrekari verðá þær, og að sama skapi veiklast mótstöðuafl eðá vilja- þrek mannsins, er í hlut á. En — þessir menn verða aldrei „föðurbetrungur", og letrið, sem skráð er í lófann á þeim, verður þeim ekki til sóma. Salómon konungur var manna spakastur að viti; hann sagði: „Sá sem stjórn- ar geði sínu er betri en sá sem vinnur borgir.“ — Karl XII. Svíakonungur sigraði lengi vel flest, er á vegi hans varð, nema þráann og heimskuna í sínum eigin barmi. Það varð honum og hans hraustu þjóð að falli. — Benja- mín Franklín hefur sagt jiessa sögu af sjer: Þegar hann var drengur eignaðist hann einu sinni nokkra kopar- skildinga og bjóst við, eins og börnum er títt, að geta keypt sjer ósköpin öl 1 fyrir j:>etta, en þá heyrði hann annan dreng vera að blása í hljóðpípu úti á strætinu og varð svo hugfanginn af því, að hann hljóp til drengsins og keypti af honum hljóðpípuna lyrir alla skildingana sína, og þóttist hafa himin höndum tekið, en jjegar heim kom, hlógu ættingjar hans að lionum og sögðu, að hann hefði getað fengið margar samskonar pípur lyrir jjetta verð; gxjet hann þá eins mikið ylir glópsku sinni og hann gladdist áður, — en jretta glappaskot varð honum svo minnisstætt, að hann gleymdi Jdví aldrei. Ávalt síð- ar, ef hann sá menn sleppa fram af sjer beislinu á ein-

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.