Hlín - 01.01.1920, Blaðsíða 23
Hlín
23
sjúkrahús Akureyrar og Sauðárkróks. Konur þessar starí'a
til og frá um Norðurland og þykja hvarvetna liinir nýt-
ustu starfsmenn. Það mun láta nærri, að þriðji hver
hreppur Norðurlands hafi nú hjúkrunarkonu á að skipa,
en það mun kostað kapps um, að hver hreppur og hvert
kauptún eignist innan skamms tírna hjúkrunarkonu. Mál-
ið hefur meira fylgi almennings en nokkurt annað ný-
mæli, sem jeg þekki, og altaf gefa einhverjar áhugasam-
ar og ósjerplægnar konur kost á sjer til náms, þótt kjör-
in sjeu alt annað en glæsileg. Á því þarf að verða gagn-
gerð breyting. Ekkert sýnist mæla á móti því, en alt
með, að hjúkrunarkonunum sje að einhverju leyti laun-
að af sveitar- eða bæjarsjóði; starfssvið þeirra þarf að
aukast að miklum mun, svo að þær lái unnið almenn-
ingi sem mest og best gagn; þær þurfa helst að geta
helgað starfinu alla krafta sína, en þá þarf kunnátta
þeirra og mentun að aukast að sama skapi.
Hinir góðu og áhugasömu læknar, sem hjer eiga lilut
að máli, láta sjer ant um, að hjúkrunarnemar fái sem
notadrýgsta fræðslu; en að miklu leyti hvílir fræðsla
þeirra á hjúkrunarkonu sjúkraliússins, og veltur því á
miklu, að hún sje starfa sínum vaxin.* Það yrði talsvert
hægra um vik, ef handhæg kenslubók fengist í hjúkrun-
arfræSi, sem von er um. Landsspítalinn brýnir svo von-
andi úr skörðin með fræðslu hjúkrunarkvenna, þegar
liann kemst upp.
Vel mentaðri og góðri hjúkrunarkonu væri flestum
öðrum betur treystandi til að hafa holl áhrif á almenn-
ing um bætt matarhæfi, skynsamlegan klæðnað og hrein-
læti í umgengni.
Land vort, veðráttufarið og vinnubrögðin útheimta
* Það má vera okkur Norðlingum mikið gleðiefni, að við Akur-
eyrarspítala starfar nú ötul og vel ment hjúkrunarkona, Júlíana
Friðriksdóttir að nafni; hefur hún numið hjúkrunarfræði í 3 ár
við ágætan spítala í Ameríku og unnið þar síðan að hjúkrunar-
störfum.