Hlín - 01.01.1920, Page 68

Hlín - 01.01.1920, Page 68
68 Hlin * Islensk smjörlíkisgerð og mjólkur- niðursuða. Anna Friðriksdóttir frá Kakka í Eyjafirði skýrir svo frá: — Líklega hefur það verið af því, að jeg starfaði við rjómabú um nokkur ár, að mjer datt í hug að reyna að sjóða niður mjólk á flöskur og ílytja hana þannig úr einum stað í annan. Jeg gerði tilraun með nokkrar flösk- ur 1914, án þess þó að hafa nokkra sjerþekkingu á mál- inu og því síður nokkur áliöld. hetta gekk nú svona og svona, en varð sarnt til þess, að mig fór að langa til að kynna mjer til hlítar, hvernig aðrar þjóðir kæmu mjólk sinni á markað víðs vegar um heiminn. í þessu augna- miði sótti jeg um styrk til Búnaðarfjelags íslands og fjekk hann. Sigldi síðan til Danmerkur haustið 1915. En þegar út kom, komst jeg fljótlega að því, að þetta var ekki neitt áhlaupaverk, því að aðferðinni er haldið svo leyndri, sem frekast er unt. En á meðan jeg er að leita fyrir mjer og kynnast, liver leiðin muni vera heillavæn- legust, þá verður fyrir smjörlíkisverksmiðja, og af því að jeg hafði verið við rjómabú, bæði hjer og líka nokkra mánuði í Danmörku, þá bjóst jeg við að geta fljótlega áttað mig á því máli, fanst líka strax, að þetta ætti að geta orðið að gagni hjer heima. Jeg reyndi því að sjá alt, sem jeg gat, þessu viðvíkjandi, og var svo heppin, að fá að koma nokkrum sinnum í verksmiðju eina og taka þátt í daglegum störfum. En samt sem áður gleymdi jeg ekki mjólkinni, og áður en jeg fór heim, var jeg búin að kom- ast eftir, hver aðferð var notuð til þess að geyma hana tímum saman. — Nú hafa Borgfirðingar stigið fyrsta sporið í þá átt að koma þessari hugsjón í framkvæmd, þótt mikið vanti á að það sje fullkomið, „en hálfnað er verk, þá hafið er“. — Nri erum við hjer í Reykjavík búin

x

Hlín

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.