Hlín - 01.01.1920, Side 69

Hlín - 01.01.1920, Side 69
Hlin 69 að koma upp dálítilli smjörlíkisverksmiðju, sem bráðum er tveggja ára. Fyrirtækið hefur gengið framar öllum vonum, þegar litið er til þess, að í upphafi voru því nær allir þekkingarvana og urðu því að þreifa sig áfram. Kringumstæður eru hjer töluvert aðrar en í Danmörku, og ýmsir örðugleikar lijer við að stríða, sem þar eru ekki. Við höfum framleitt mest 2200 pund af smjöri á dag. En skorti okkur ekki mjólk og önnur efni, ættum við að geta framleitt nokkru meira. Þetta eru nú aðeins „sundurlausir þankar" um málið. Við erum að flytja okkur í nýtt hús nteð verksmiðjuna og erum því önnum kafin, en getir þú notað eitthvað af þessu í ,,Hlín“, þá er það velkomið. Jeg vildi, að þessi frásögn, þótt ófullkomin sje, gæti orðið hvatning fyrir íslenskar stúlkur til þess að reyna að sjá sig um og íinna eitthvað, sem þær gætu unnið sjer, landi sínu og þjóð gagn með. Þá væri tilganginum með línum þessum náð. Vinsamlegast, A. F. Nóttin helga. Þegar jeg var fimm ára, varð jeg fyrir þeirri sáru sorg að missa ömmu mína. — Alt fram að þeint degi sat hún í legubekknum í herberginu sínu og sagði sögur. Mig minnir, að hún segði sögur frá morgni til kvölds. Við börnin sátum grafkyr við hlið hennar og hlustuðum á. Þá var gaman að lifa. Engin börn í víðri veröld áttu eins gott og við. Jeg man lítið eftir ömmu minni. Þó man jeg, að hún

x

Hlín

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hlín
https://timarit.is/publication/610

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.