Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 4

Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 4
Sr. Halldór Reynisson Barnslegur leyndardómur jólanna Jólahugvehja Jólin segja frá fæðingu bams - það er kunnara en frá þurfi að segja. Sömuleiðis hljómar það mjög kunnuglega þegar sagt er að jólin séu hátíð bamanna og þess barnslega í okkur hinum sem teljast víst varla börn lengur. Ekkert af þessu kemur á óvart þegar jólin nálgast enn á ný. Kannski kemur það heldur ekki á óvart þegar sagt er að í jólafrásögninni birtist eitthvað óumræðilega mikilvægt. Eitt- hvað sem kemur við kjarnann á því að vera manneskja, jafnt barn sem fullorð- inn. Samt vefst þetta barnslega við jólin stundum fyrir okkur. Jólin fjalla um barn, þau fjalla um hið barnslega. Kannski á hið barnslega dálít- ið undir högg að sækja þessa dagana. Það er öllum börnum eðlilegt að flýta sér að verða fullorðin. Akafann að verða stór þekkjum við öll sem höfum verið börn. A hinn bóginn er ýmislegt í erli dagsins sem vill flýta barninu úr hófi. Sumir gera sér að féþúfu þessa eðlilegu hvöt til að vaxa og þroskast. Böm og foreldrar ungra bama eru orðin markhópur, eins og það heitir á nútímaíslensku. Böm nú- dagsins em oft illilega varin gegn ónauð- synlegum upplýsingum og ótímabærum og erfiðum þroska. Það þarf að hlúa að því bamslega, í því er nefnilega fólgið gildi í sjálfu sér. Mart- einn Lúther sagði að köllun bamsins væri að vera barn. Bamið þarf að fá að vera bamslegt, jafnvel bamalegt, það þarf að fá tækifæri að leika sér eins og bam. Kannski er það leikurinn sem er í brennidepli þess að vera bam. Glaður, græskulaus leikur - hvað er betra. Þekktur sænskur kennimaður orðaði þetta þannig: „Eilifa lífið er sem glaður leikur lítilla bama.“ Við sjáum þetta lífsfjör leiksins ekki síst í góðu íþróttastarfi fyrir böm. Sjálfum finnst mér alltaf jafn gaman að horfa á lítil böm leika fótbolta eða annan leik, þar sem bamsleg gleði og ákafi skín úr hverju andliti. Bömin lifa í leiknum, í algleymi leiksins. Veröldin utanvallar hættir að vera til. Og svo þegar einhver meiðir sig þá er sjálfhætt þótt í miðju kafi sé til að stumra yfir þeim með meiddið. Leyfum bömum að vera börn! Látum íþróttastarf meðal ungra bama snúast um gleði leiksins. Jólin fjalla um bam sem við þekkjum betur sem fulltíða mann. Jesúbarnið óx úr grasi, það óx upp úr jötunni - enda þótt við setjum það aftur í hana um hver jól! En börn verða ekki börn að eilífu ef allt er með felldu. Barnið er á leiðinni að verða fullorðið. Við sem eigum börn eða vinnum með börnum höfum það eina markmið að koma þeim til manns. Það hlýtur að vera helsta markmið í öllu barna- og æsku- lýðsstarfi, hvort sem það er í íþróttum, skátum eða kirkjunni, að koma bömum til manns. En hvemig manns? Uppeldi miðast við að börn þroski hæfileika sína til að verða heilbrigðar manneskjur, með þróað vitsmunalíf og þroskaðar tilfinningar. Uppeldi miðar að sjálfstæðum einstak- lingum sem eru færir um að vita skin góðs og ills. Færir um að bera ábyrgð á eigin lífi. Þess vegna er fyrsta grein í uppeldis- stefnu hvers íþróttafélags ekki það að búa til bestu fótboltamenn landsins, heldur að bamið verði að heilbrigðum, sjálfstæðum manni. Að fullorðnast er að læra á styrkleika sína og veikleika. Að læra að taka sigri og ósigri. Að læra að vinna sigur á sjálfum sér. Varla er til heppilegri vettvangur fyrir slíkt uppeld- isstarf en í íþróttum. Ef íþróttafélagið er góður vettvangur fyrir uppeldi bama, þá skiptir minna máli hvort félagið vinnur úrvalsdeildina eða fellur. Komum því börnum til manns! Höfum það að meginmarkmiði í íþróttastarfinu. Og svo verða börnin fullorðin. Vem- leikinn tekur við, oft napur. Jesúbarninu mætti grimmur heimur hinna fullorðnu. Ofbeldi. Hræsni. Græðgi. En einnig heiðarleiki, réttlæti, góðmennska. Marg- ur maðurinn hefur vaxið úr grasi í þeirri trú að það að verða fullorðinn væri fólg- ið í því að glata sakleysinu og góð- mennskunni, því heimurinn væri hvort sem er illur. Eitt sinn sagði gelgjulegur fermingardrengur við mig: „þegar ég var lítill vildi ég vera góður, 'nú vil ég miklu frekar vera vondur.“ Þeir eru margir meðal okkar fullorð- inna sem hafa glatað trúnni á lífið af því að þeir glötuðu sakleysi og trú barnsins, trúnni á hið góða, trúnni á Hinn góða þegar þeir uxu úr grasi. Þeir leita langt yfir skammt að því sem gefur lífrnu gildi likt og alkemistinn sem fór í fjarlægt land að leita fjársjóðar en fann hann að lokum í garðinum heima. Farsæld okkar sem fullorðinna er á margan hátt háð því að hvemig að okkur var hlúð í bemsku. Og viðhalda því góða sem við lærðum sem böm; gleðinni, trúnni, leiknum, sakleysinu. Kannskivar það þetta sem hinn fullorðni Jesús átti við þegar hann sagði um börnin að slíkra væri Guðsríkið. Eitt af því barnslega sem við megum ekki glata sem fullorðin er leikurinn. Algleymið, gamanið, vináttan, traustið. Merking jólanna er einmitt sú, að varðveita hið bamslega hversu gömul sem við verðum. Varðveita þetta heilaga sem við eigum öll innra með okkur, vöggugjöfina frá höfundi lífsins. Og tjá það síðan í gleði leiksins. Það er leyndar- dómur lífsþroskans. Fyrst Guð varð maður í litlu bami ætt- um við sem erum fullorðin að varðveita hið barnslega. Það er leyndardómur jól- anna. Gleðileg jól! Halldór Reynisson Verkefiiisstjóri frœðslumála á Biskupsstofu www.valur.is 4 Valsblaðið 2004
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.