Valsblaðið - 01.05.2004, Page 78
Ungir Valsarar
Sveinn Skorri er 17 ára og hefur æft með
Val síðan hann var sjö ára. Hjá honum
kom aldrei annað félag en Valur til
greina enda býr hann í Valshverfi og allir
félagar hans voru í Val.
- Hvaða hvatningu og stuðning hef-
ur þú fengið frá foreldruni þínum í
íþróttum?
„Ég hef fengið mikinn stuðning frá
foreldrum mínum við iðkun íþrótta. Ég
byrjaði að æfa fótbolta í 7. flokki og
handbolta í 6. flokki. Ég valdi að stunda
bara handbolta eftir að ég lauk við 3. fl.
karla, enda æfingar og keppni þá orðin
mjög tímafrek ef á að stunda þetta með
námi. Ég tel að stuðningur foreldra skipti
höfuðmáli. Hvað þá sérstaklega á byrj-
unarárum. Pabbi var í unglingaráði
knattspyrnudeildar allan þann tíma sem
ég æfði fótbolta eða í tæp 10 ár.“
- Segðu frá skemmtilegum atvikum
úr boltanum.
„Ferðin sem við fórum til Vestmanna-
eyja í fyrra í 3. flokki í bikamum er mér
ofarlega í minni um fyndin atvik. Við
urðum veðurtepptir og þurftum að gista
eina nótt. Svo var ákveðið þegar í ljós
kom að ekki yrði flogið að við skyldum
fara með Herjólfi. Tilhlökkunin í mönn-
um við að komast heim var mikil í byrj-
un ferðar. En það breyttist fljótt. Nánast
allir veiktust og meirihluti ældi. Einn
meira segja svo mikið að hann þurfti að
fara heim í keppnisstuttbuxum. Við mið-
bik ferðarinnar er ég ráfandi urn skipið
kengboginn í baki sökum veikinda heyri
ég þá eitthvert trall á milli æluhljóðanna
sem yfirgnæfa skipið. Lít ég í átt að mat-
salnum og sé þar Ægi Þór Ægisson koma
aðvífandi með bros á vör borðandi
rjómaís með mikilli list. Þetta var ekki
svo fyndið þá, þar sem ég ældi næstum
því við það eitt að sjá ísinn, en svona eft-
ir á að hugsa var e-ð fyndið við þessa
sjón. Nú þegar ég minnist á ís man ég
einnig eftir einni æfingu í fótboltanum
að vetri til, sem var hlaup í Öskjuhlíðinni
og svo lyftingar. Það var einn nýbyrjaður
að æfa með okkur og dróst hann fljótt á
eftir okkur úr hópnum og villtist. Kom
hann svo u.þ.b. 20 mínútum á eftir okkur
útataður í ís. Aðspurður útskýrði hann að
þegar hann villtist ákvað hann að labba
að Perlunni og reyna að fmna leiðina að
Valsheimilinu þaðan. En úr því að hann
var kominn í Perluna gerði hann sér lítið
fyrir og keypti sér ís fyrst hann var nú
korninn þangað og hann nokkuð svangur.
Þessari útskýringu var þjálfarinn minn,
þá Þór Hinriksson, lítt hrifmn af.“
- Hvað þarf til að ná langt í hand-
bolta eða íþróttum almennt?
„Ef maður ætlar sér að ná langt verður
maður að vera samkvæmur sjálfum sér,
stunda heilbrigt lífemi, hafa aga og vera
bjartsýnn. Ég held að það sé það sem
gildir. Ætli maður þurfi ekki bara að
skjóta meira. Þeir skora sem skjóta og
mörkin telja."
- Hvers vegna handbolti, hefur þú
æft aðrar greinar?
„Spenna, hraði og stemning. Hvort
sem þú ert eldheitur áhorfandi eða bara
villtist inn í húsið þá hrífur þig ekkert
meira en hraður spennandi leikur.
Hver og einn sem horfir á er þátt-
takandi. Ahuginn fer ört vax-
andi erlendis (á undir högg
að sækja hér á landi en ríf-
ur sig fljótt upp) og þró-
ast mikið milli ára. „Sí-
breytilegur" er gott orð
yfir handbolta og
hann er aldrei eins.
Ég hef æft fót-
bolta og prófað
margar aðrar
íþróttir þótt
ég hafi ekki
s t u n d a ð
æfingar
r e g 1 u -
iega.“
- Hverjir eru þínir framtíðar-
draumar í handbolta?
„Draumurinn væri að vinna nokkra Is-
landsmeistaratitla með meistaraflokki,
kíkja í atvinnumennskuna og reyna að
notfæra sér það sem maður hefur lært
við það að iðka íþróttir í frábærum fé-
lagsskap hjá góðu félagi eins og Valur er.
Ég vona að ég eigi enn mörg góð og
skemmtileg ár eftir hjá Val.“ .
- Er einhver þekktur Valsari í fjöl-
skyldu þinni. Hvernig hefur pabbi
þinn komið að félagsmálum hjá Val?
„Guðjohnsen-feðgarnir eru skyldir
mér. Ætli þeir séu ekki þeir þekktustu.
Pabbi (Höskuldur Sveinsson) var gjald-
keri unglingaráðs í tæp 10 ár og starfaði
mikið í foreldraráðum allra flokka, sem
ég hef æft með. Hann hefur unnið mikið
á vegum foreldra í félaginu. Það er alveg
ljóst að framlag foreldra skiptir miklu
máli hjá félagi eins og Val.“
- Hver stofnaði Val og hvenær?
„Séra Friðrik nokkur Friðriksson þann
11. maí 1911“