Valsblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 51
námskeið á tímabilinu 2004-2005 og
fara yfir störf dómara á léttan og fræð-
andi hátt fyrir yngri flokka félagsins með
það að markmiði að Valur geti skilað af
sér fleiri dómurum í framtíðinni. Staðan
á dómaramálum landsmanna er ekki
beysin og er það okkar félaganna að
leggja okkar lóð á vogarskálarnar til að
laga það. Ekki þýðir að benda á aðra og
saka dómarstéttina endalaust, þetta er
sameiginlegt vandamál sem þarf að leysa
og það fyrr en síðar. Við Valsmenn eig-
um ekki að vera eftirbátar annarra lengur
og þurfum að taka til í þessum málum
hjá okkur með hagsmuni handboltans í
heild sinni að leiðarljósi.
Bneytingar a leikmannahópi
Að afloknu keppnistímabilinu 2003-
2004 urðu töluverðar breytingar á leik-
mannahópi Vals eins og gengur og gerist
en þó er langt síðan jafnmargir hafa
horfið á braut. í sumar hvarf einn af
dáðadrengjum Vals Markús Máni Maute
á braut og hélt í atvinnumennsku til
Diisseldorf í Þýskalandi, óskum við hon-
um velfamaðar og færum honum bestu
þakkir fyrir hans framlag hér á Hlíðar-
enda sem er ómetanlegt. Sýndi Markús
af sér mikið trygglyndi við félagið er
hann krafðist uppeldibóta af Diisseldorf
til handa félaginu án þess að hann þyrfti
þess þar sem hann var samningslaus og
gat farið án kvaða. Þetta er öðrum til eft-
irbreytni og sýnir hvaða góða mann
Markús hefur að geyma. Þá kvaddi
leikjahæsti leikmaður Vals frá upphafi í
mfl. karla, Freyr Brynjarsson félagið og
gekk til liðs við systurfélag okkar Hauka
í Hafnarfirði. Freyr er einn af okkar
Reykjavíkurmeistarar 5. flokks karla.
bestu drengjum og framlag hans hér á
Hlíðarenda seint metið að verðleikum
enda var hann alltaf boðinn og búinn til
að aðstoða og var hann aukinheldur frá-
bær leikmaður, þjálfari og umfram allt
Valsari. Eru Freysa færðar hugheilar
þakkir og ósk um gott gengi á nýjum
vígstöðvum. Þá kvöddum við Valsmenn
Roland Val Eradze sem ákvað að söðla
um og hélt hann ásamt fjölskyldu til
Arna Grímsdóttir íhraðaupphlaupi. (FKG)
Vestmannaeyja og gekk til liðs við ÍBV.
Er Roland þakkað hans framlag hér á
Hlíðarenda og óskað velfarnaðar í fram-
tíðinni. Af öðrum leikmannamálum á ný-
liðinni leiktíð er það að frétta að vamar-
tröllið Ragnar Ægisson söðlaði um og
gekk til liðs við HK, Davíð Sigursteins-
son var áfram lánaður til Þórs á Akureyri
og Asbjörn Stefánsson sem var lánaður
til Vrkinga tímabilið 2003-2004, kom til
okkar aftur fyrir yfirstandandi tímabil.
Maður kemur þó í manns stað og var
strax eftir brotthvarf Markúsar gengið
frá því að landsliðmaðurinn Vilhjálmur
Halldórsson gengi til liðs við okkur frá
Stjömunni og er það mikill styrkur fyrir
okkur Valsmenn að hafa fengið hann í
okkar raðir, enda gífurlega mikið efni
þar á ferð sem miklar vonir eru bundnar
við. Til að fylla skarð Rolands kom til
liðs við okkur Eyjamaðurinn Hlynur Jó-
hannesson og mun hann ásamt Pálmari
Péturssyni sjá um að hrella sóknarmenn
annarra liða og erum við Valsmenn án
efa með eitt besta markvarðapar landsins
um þessar mundir. Þá var ákveðið að
semja við örhentu skyttuna og slóvanska
landsliðsmanninn Pavol Polakovic um að
fylla í fótspor Bjarka Sigurðssonar og
Hjalta Gylfasonar sem báðir em frá
vegna meiðsla og þeirra er sárt saknað en
vonir bundnar við að þeir komi endur-
nærðir í slaginn á næsta keppnistímabili
og jafnvel útlit fyrir að Hjalti verði klár
fyrir vorið. Það er því ljóst að Valur mun
áfram leitast við að vera áfram í fremstu
röð og fyrirmynd annarra félaga.
Eins og áður hefur verið tíundað náði
mfl. karla góðum árangri undir hand-
leiðslu Oskars á hans fyrsta ári og Ijóst
að hann er á réttri leið með liðið og hefur
hann staðið undir væntingum og rúmlega
það, enda einn færasti þjálfari landsins.
í meistaraflokki kvenna var haldið
áfram að byggja á þeim efniviði sem fé-
lagið hefur alið af sér á undanförnum
árum, Guðríður Guðjónsdóttir er á sínu
þriðja ári sem þjálfari mfl. kvenna og
henni til fulltingis í ár er einn af okkar
bestu drengjum, Valdimar Grímsson.
Uppskeran á síðasta tímabili er besti ár-
angur liðsins í langan tíma og liðið er
ungt að árum og hér er verið að byggja til
framtíðar. Það er ljóst að miklir hæfileik-
ar og áræðni býr í hópnum en liðið verð-
ur að sýna þolinmæði og ekki er spuming
að stúlkumar munu ná þeim árangri sem
þær vilja þegar fram líða stundir enda 6
A landsliðskonur í okkar röðum í dag og
ekkert annað lið sem getur státað af slík-
um fjölda landsliðskvenna. Fyrir tímabil-
ið 2003-2004 var gengið frá samningum
við stóran hluta liðsins til 3 ára og mark-
miðið er að koma kvennaboltanum á
Hlíðarenda í fremstu röð.
Töluverðar breytingar áttu sér stað á
leikmannahópnum á tímabilinu 2003-
2004 og var mikið um meiðsli og barn-
eignarfrí. Gerður Beta Jóhannsdóttir sem
hafði komið aftur heim í okkar raðir frá
Víkingum hefur nú þurft að leggja skóna
á hilluna unt stundarsakir vegna lang-
þráðra meiðsla. Brynja Steinsen sem
kom til okkar aftur frá Haukum, þurfti að
hverfa frá á miðju tímabili vegna bams-
burðar og er hún væntanleg á tímabilinu
2004-2005 líkt og Hafdís Hinriksdóttir
Valsblaðið 2004
51