Valsblaðið - 01.05.2004, Page 37
Eitip Guðna Olgeirsson
hafi sýnt það í verki og gert stúlkum og
drengjum jafn hátt undir höfði varðandi
æfingar og keppni. Valur sé í dag með
kvennaflokka í knattspyrnu í öllum
flokkum og árangur þeirra hefur ekki
verið síðri en drengjanna.
- Hversu mikilvœgt er að ykkar mati að
iðkendur Vals í dag þekki til sr. Friðriks?
Þorsteinn segir að sr. Friðrik haft verið
í fararbroddi í æskulýðsstarfi. „Hann var
mjög næmur á þarfir ungu kynslóðarinn-
ar og innan KFUM og KFUK spruttu
fram starfsgreinar á borð við kvöldskóla,
bókasafn, skátafélag, bindindisfélag,
taflflokkur, hannyrðadeild, lúðrasveit,
söngflokkar, sumarbúðir o.fl. og er þama
ógetið knattspyrnufélög en sr. Friðrik
stofnaði ekki aðeins Val heldur einnig
Hauka. Sr. Friðrik leitaði sífellt nýrra
leiða til þess að byggja upp félagsstarf á
kristnum gildum sem mætt gæti þörfum
æskunnar og skapað góða sál í hraustum
likama. Vegna þessa teljum við mikil-
vægt að iðkendur í Val og víðar þekki til
verka sr. Friðriks,“ segir Þorsteinn.
- Hvað var mikilvœgasta framlag sr.
Friðriks til knattspymu hér á landi og
hjá Val? Að hvaða leyti var hann á und-
an sinni samtíð?
Þeir félagar vilja meina að mikilvæg-
asta framlag sr. Friðriks hafi verið stofn-
un Vals. Margt fleira mætti nefna svo
sem það að hann flutti merka ræðu -
„FAfR PLAY“ við vígslu fótboltasvæðis
KFUM þann 6. ágúst 1911. Þessi ræða
var stórmerkileg og augljóst að hann var
langt á undan sinni samtíð því FIFA - Al-
þjóða knattspyrnusambandið - kynnir til
leiks „FAIR PLAY“ næstum 100 árum
síðar!
Árni Heiðar Geirsson 3. flokki.
í þessari ræðu sr. Friðriks má lesa
nokkur gullkom, svo sem: „Leikurinn
óprýkkar við allt ósæmilegt. Hjer á þess-
um velli má aldrei heyrast ljótt orðbragð,
ekkert blótsyrði, engin keksni, engin
særandi orð, enginn gámngaháttur nje
háreysti!" og síðan ekki síst þetta:
„Leggið alla stund á að leggja fegurð inn
í leik yðar, látið aldrei kappið bera feg-
urðina ofurliði."
- Þorsteinn, segðu frá tilurð þess að
KB banki kom að þessu máli. Hvaða
gildi hefur þetta fyrir KB banka?
„Við Jón ræðum oft um okkar félag,
Val. Þar erum við samherjar en í enska
boltanum andstæðingar, hann með Chel-
sea og líður vel í dag, en ég með mínu
gamla góða Manchester United.
Það var í haust að Jón sagði að
unglingaráð hefði ákveðið að veita viður-
kenningu stúlku í 3. flokki í knattspymu
sem þykir hafa sýnt mestan félagslegan
þroska og verið öðrum Valsstúlkum til
fyrirmyndar, innan vallar sem utan. Jón
sagði það hafa verið óheppilegt á tímum
jafnréttis að drengjamegin í 3. flokki væri
veittur Bemburgskjöldur af sama tilefni
en engin viðurkenning væri til stúlku.
Hann leitaði því til mín og spurðist fyrir
hvort KB banki væri til í að gefa verð-
launin. Ég tók strax vel í beiðni Jóns og
var honum hjartanlega sammála.
í umræðu á heiti á viðurkenningu
bankans var okkur hugsað til sr. Friðriks
þar sem viðurkenningin er veitt í hans
anda, „Látið aldrei kappið bera fegurðina
ofurliði."
Við ræddum síðan um að veita sr.
Friðriksbikarinn báðum kynjum. Erindi
um það fór fyrir unglingaráð knatt-
spymudeildar Vals og var erindið sam-
þykkt einróma og síðan einnig af stjórn-
inni. Samhliða því var ákveðið að hvíla
Bemburgskjöldinn.
Fyrir KB banka skiptir miklu máli að
styðja ávallt við æsku landsins á upp-
byggilegum hátt. Það teljum við okkur
meðal annars vera að gera með þessum
hætti,“ segir Þorsteinn.
- Hvernig líst ykkur á framkvœmdir og
uppbyggingu að Hlíðarenda á næstunni?
Þorsteinn segir að sér lítist auðvitað
mjög vel á þessar framkvæmdir. Hlíðar-
endi verði glæsilegur þegar þessu er öllu
lokið. Það sé hins vegar erfitt að bíða því
öll bið er löng. Þennan biðtíma þurfi að
skipuleggja vel. A meðan sum félög æfa
inni f íþróttahúsunum yfir háveturinn
með langtum betri aðstöðu verða
Valsmenn enn að notast við gömlu
Bergdís Bjarnadóttir 3. flokki.
„góðu“ mölina að Hlíðarenda að stórum
hluta. Þorsteinn vísar í þessu sambandi í
póst sem hann setti inn á valur.is á spjall-
vefinn fyrir rúmum 2 árum. Þar sagði
hann: „Ég tel ntjög mikilvægt fyrir Val að
framkvæmdaröð að Hlíðarenda verði
með þeim hætti að fyrst verði hafist
handa við að byggja knatthúsið (yfir-
byggðan gervigrasvöll). Þannig skapast
fullkomin aðstaða fyrir fótboltann auk
þess sem handboltinn og karfan gætu
einnig æft þar. Þetta er sérstaklega mikil-
vægt svo ekki þurfi að koma til þess að
iðkendur í Val þurfi í allt of miklum mæli
að leita út fyrir Hlíðarenda yfir vetrartím-
ann til æfinga á meðan á framkvæmdum
stendur. Að byrja á að rífa nýrra íþrótta-
húsið áður en byggingu knatthússins er
lokið væri glapræði að mínu mati.“ Svo
mörg voru þau orð á sínum tíma og sú
skoðun Þorsteins hefur ekki breyst. Hann
er enn á því að bygging gerfigrasvallarins
ætti að vera forgangsmál þó að hann
verði ekki yfirbyggður.
Jón Höskuldsson segist ekki vera í
nokkrum vafa unt að fyrirhugaðar breyt-
ingar á aðstöðu iðkenda að Hlíðarenda
munu hafa mjög miklar breytingar í för
með sér og verða lyftistöng fyrir allt
starf yngri flokka félagsins. Gera megi
ráð fyrir mikilli fjölgun iðkenda með
bættri aðstöðu til æfinga og keppni.
„Ég tek undir með Þorsteini að biðin
verður erfið fyrir alla og miklu skiptir að
æfingar verði vel skipulagðar hjá félag-
inu og þá haft að leiðarljósi að sem allra
minnst röskun verði á æfingum yngstu
iðkenda félagsins og að þær verði í öll-
um tilvikum á Hlíðarenda eða í allra
næsta nágrenni félagssvæðisins," segir
Jón ákveðið.
Valsblaðið 2004