Valsblaðið - 01.05.2004, Page 59
ofboðslega góður þjálfari og smám sam-
an jókst hjá mér áhuginn og sjálfstraust-
ið. Mér hefur yfirleitt gengið mjög vel
að þjálfa stelpurnar þótt auðvitað hafi
skipst á skin og skúrir. Nú er ég reyndar
að fara í heilt ár sem au pair til Banda-
ríkjanna að passa þrjár stelpur og ætla að
breyta um umhverfi og taka mér fn' frá
fótboltanum en vonandi fæ ég tækifæri
til að leika með einhverju liði úti og
kynna mér þjálfun hjá Bandaríkjamönn-
um en kvennaknattspyrna er hátt skrifuð
þar,“ segir Jóhanna og brosir, full tii-
hlökkunar að takast á við ný ævintýri og
öðlast frekari lífsreynslu.
Eiginleikar góðs þjálfara
Jóhanna telur að þjálfari þurfi fyrst að ná
virðingu iðkenda, vera góð fyrirmynd og
til að iðkendur taki mark á þjálfaranum
þurfi hann að hafa sjálfur spilað fótbolta
og helst þurfa iðkendur að hafa séð hann
spila. Þjálfari þarf einnig að vera góður
félagi krakkanna og gera eitthvað
skemmtilegt með þeim.
Guðmundur segir að þjálfari þurfi að
hafa mikinn áhuga á fótbolta, þjálfun,
hafa mikinn metnað, vera góður í mann-
legum samskiptum og tjáningu, hafa
reynslu og þekkingu á íþróttinni sjálfri,
kunna að miðla þekkingu og fá krakkana
til að hlusta og meðtaka skila-
boð. Einnig þurfi þjálfari að vera
góð fyrirmynd. Ólafur segir mik-
ilvægt að þjálfari hafi áhuga og
metnað til að drífa krakkana
áfram því þá hrífist krakkamir
með. Einnig þurfi hann að vera
góður félagi krakkanna og trúnað-
arvinur en mikilvægt er að iðk-
endur þori að segja þjálfaranum
frá ef þeim líður illa, mikilvægt sé
að vinna á sálrænum þáttum utan
vallar til að iðkandi nái að blómstra
innan vallar. Það sé mikilvægt að
krakkamir geti leitað til þjálfara
með vandamál. Einnig telja þau
mikilvægt að þjálfarar sæki formleg
námskeið og afli sér þekkingar en
reynslan sé líka mikilvæg.
Systkinin eru ekki á því að þessi munur
sé kominn vegna þjálfunar, þeim finnst
þetta vera fyrst og fremst kynjamunur.
Þeim finnst mikilvægast að vekja áhuga
iðkenda á fótbolta og miklum metnaði í
að ná árangri, sigurvilji sé geysilega
mikilvægur ef árangur eigi að nást og
þar skipta þjálfarar miklu máli og einnig
hvaða væntingar almennt eru gerðar hjá
félaginu um árangur. Það er einnig mik-
ilvægt að iðkendur setji sér eigin mark-
mið og innri metnað en það er hlutverk
þjálfarans að ná fram því besta í hverjum
einstaklingi og byggja upp liðsheild sem
hefur vilja, getu og metnað. Það tekur
mikinn tíma fyrir þjálfara að búa til sig-
urvegara, það þarf vinnu og aftur vinnu,
en lífsstíllinn þarf líka að vera heilbrigð-
ur, mataræði og neysluvenjur, næring,
hvfld og þar skilur á milli sigurvegara og
hinna og þarna eru systkinin öll hjartan-
lega sammála. Það þurfi að koma þeirri
hugsun inn hjá leikmönnum að þeir geti
unnið hvaða lið sem er, hugarfarið skipt-
ir ótrúlega miklu máli.
Þjálfarar með stórt Valsiijarta úr
Systkinunum finnst mikilvægt að þjálf-
arar komi úr röðum Valsmanna með
Valshjartað
Kynjamunur í tótbolta
Systkinin eru sammála því að munur
sé á kynjum í fótbolta. Þau telja stelpur
almennt viðkvæmari en strákar og það
þurfi að vanda sig betur við það sem er
sagt við þær. Stelpur gefist oft fyrr upp
en strákamir og brotna saman fyrr.
Úrklippa lir gömlu Valsblaði frá 1989. Sannkölluð Valsfjöl
skylda.
á réttum stað. Það skipti miklu máli að
koma því inn hjá leikmönnum að þeir
eru ekki að fara að spila fyrir eitthvað
lið, þeir þurfa að læra að bera virðingu
og stolti fyrir búningi félagins og merki.
Valssöngvar, sagan og upprunninn, allt
skiptir þetta ótrúlega miklu máli til að
byggja upp metnaðarfulla leikmenn sem
spila með Valshjartað á réttum stað.
Hvert stefnir félagið
Systkinunum finnst framtíðin björt hjá
félaginu, en halda þurfi vel á spilunum til
að festa félagið í efstu deild karla á ný.
Jóhanna er mjög bjartsýn á gott gengi
Vals í kvennafótboltanum á næstu árum.
„Það er ekkert sem bendir til annars en
að velgengnin eigi eftir að halda áfram á
næstu árum, áhuginn hjá stelpunum er
mikill, félagið er á sigurbraut, stuðnings-
mönnum hefur fjölgað stórlega og öll
umgjörð er til fyrirmyndar og síðast en
ekki síst höfum við frábæran þjálfara
hana Betu. Velgengni meistaraflokks
kvenna á eftir að smita út frá sér til yngri
flokkanna. Yngri flokkamir eru flestir
fjölmennir og efnilegir þannig að ég
kvíði ekki framtíðinni, hlakka bara til að
fylgjast með félagninu á næstu árum á
sigurbraut," segir Jóhanna brosandi og
full bjartsýni.
Tvíburunum finnst einnig til fyrir-
myndar að stelpurnar í meistaraflokki
kvenna fylgjast með starfinu í yngri
flokkunum og mæta á leiki hjá þeim.
Ungu stelpurnar líta upp til
stelpnanna í meistaraflokki,
þær eru Idolin þeirra og fyrir-
myndir. Þeim finnst vanta þessi
tengsl karlamegin, meistara-
flokksleikmenn hafa ekki mik-
ið fylgst með yngri flokkun-
um. Stelpurnar í yngri flokk-
unum séu líka miklu duglegri
að mæta á leiki hjá meistara-
flokki kvenna en ungu strák-
arnir að mæta hjá meistara-
flokki karla. Þeim finnst að
þessu þurfi að breyta, auka
þurfi tengsl milli yngri og
eldri flokka, þá sé framtíðin
björt hjá félaginu og það nái
að halda sér á réttum stað,
þ.e. ávallt á meðal þeirra
bestu.
Það er ómetanlegt fyrir
félagið að eiga þau systkin-
in að og reyndar alla fjöl-
skylduna í kröftugu og
markvissu uppbyggingarstarfi sem ör-
ugglega á eftir að skila sér þegar fram
líða stundir. Það var gaman að spjalla
við Óla, Gumma og Jóhönnu eina kvöld-
stund.
Valsblaðlð 2004
59