Valsblaðið - 01.05.2004, Blaðsíða 81
Besta íslenska landslið aiina tfma
í 16 manna hópnum eru hvorki meira nó minna en 9 Valsarar
I tímariti um fót-
boltasumarið
2003 var ýmsum
áhugamönnum í
knattspymu veitt
tækifæri til að
velja besta
landslið allra
tíma á Islandi.
48 svöruðu
þessari könnun
og niðurstöðumar sýna svart á hvítu að
ekkert annað félagslið á Islandi hefur alið
upp jafnmarga hæfileikaríka knattspyrnu-
menn og Valur. Ásgeir Sigurvinsson er
eini maðurinn sem fær tilnefningu frá öll-
um þátttakendum og telst því ótvírætt
besti knattspymumaður allra tíma á Is-
landi samkvæmt þessari óformlegu könn-
un í ritinu Fótboltasumarið 2003.
Eftirtaldir Valsarar eru í þessum
úrvalslandsliðshópi:
Arnór Guðjohnsen,
41 tilnefning
Guðni Bergsson,
39 tilnefningar
Eiður Smári Guðjohnsen,
34 tilnefningar
Albert Guðmundsson,
30 tilnefningar
Jóhannes Eðvaldsson,
22 tilnefningar
Atli Eðvaldsson,
21 tilnefning
Bjarni Sigurðsson,
12 tilnefningar
Hermann Gunnarsson,
10 tilnefningar
Siguður Dagsson,
10 tilnefningar
I byrjunarlið-
inu eru 6 Vals-
menn, skv. þess-
ari könnun, þeir
Bjami Sigurðs-
son markmaður,
Guðni Bergsson
og Jóhannes Eð-
valdsson vamar-
menn, Amór Hermann Gunnarsson.
Guðjohnsen
sóknarmaður og Albert Guðmundsson
miðjumenn og Eiður Smári Guðjohnsen
sóknarmaður. Geri önnur lið betur. Síðan
vaknar sú spurning hvort þetta landslið
væri nógu gott til að leika til úrslita á
stórmóti.
Munið
getraunanúmer
Vals -101
Guðni Bergsson.
Sportklúbbur Landsbanka íslands
endumýjaði nýlega samstarfs-
samning við Val. í meginatriðum
er samningurinn þannig að iðk-
endur skrá sig í Sportklúbb LÍ og
á móti veitir Landsbankinn veg-
legan styrk til Vals, iðkenda og
foreldraráða yngri flokkanna í öll-
um deildum félagsins. Þess má
einnig geta að Sportklúbburinn
mun niðurgreiða æfingagalla iðk-
enda allra deilda félagsins. Mynd-
arlegur samningur af þessu tagi er
mjög mikilvægur fyrir Val og kem-
ur til með að auðvelda yngri
flokka starf allra deilda Knatt-
spymufélagsins Vals. I tengslum
við endumýjun samningsins vom
eftirtaldar myndir teknar, en full-
trúar ungu kynslóðarinnar hjá Val
gengu á fúnd Björgúlfs Guð-
mundssonar stjómarformanns
Landsbanka Islands og þökkuðu
honum fyrir stuðninginn.
Undirritun samnings í nóvember 2004 um vegleg-
an stuðning Landsbankans við staif yngri flokka
Knattpymufélagsins Vals. Frá vinstri. Hrafnkell
Helgason, Bjarney M. Gunnarsdóttir, Arni Einils-
son útibússtjóri aðalbanka Landsbankans, Sveinn
Stefánsson framkvœmdastjóri Vals, Jón Höskulds-
son formaður unglingaráðs knattspyrnudeildar og
Þórður Jensson íþróttafulltrúi.
Valsblaðið 2004