Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 9

Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 9
íslandsmeistarar Vals í kvennaknattspymu 2004. Efri röðfrá vinstri: Gunnleifur, Ólafur, Dóra Stefáns, Pála Marie, Guðrún María, Nína, Málfríður Erna, Guðbjörg, Laufey Jóhanns, Ema, Elísabet, Jóhann, Margrét, Stefán og Erla. Neðri röð frá vinstri: Jóhanna, Regína María, Laufey Ólafs, Kristín Ýr, íris, Ásta, Vilborg, Dóra María. (FKG) Það er gríðarlega mikilvægt að við Valsmenn stöndum allir saman um þess- ar mestu framkvæmdir nokkurs íþrótta- félags á íslandi fyrr og síðar, þegar þær byrja. Við verðum að sýna lipurð og þol- inmæði og sérstaklega sinna yngri iðk- endum, sem tímabundið þurfa jafnvel að sætta sig við lakari æfmgaaðstöðu en jafnaldrar þeirra í öðrum íþróttafélögum. Miðað við áætlanir er gert ráð fyrir að framkvæmdatími verði ekki meiri en 18 mánuðir, þ.e. frá því snemma vors 2005 og fram á haust 2006. Er það við hæfi en á árinu 2006 verður Knattspyrnufélagið Valur 95 ára. Hefðbundió starf Mjög góð frammistaða afreksflokka Vals í knattspyrnu og handknattleik bæði í karla- og kvennaflokkum ber hátt á þessu ári. Bæði karla- og kvennalið fé- lagsins í handknattleik léku til úrslita um Islandsmeistaratitilinn en bæði þurftu að lúta lægra haldi, karlaliðið fyrir Haukum og kvennaliðið fyrir IBV, en æsileg rimma Vals og IBV fer í sögubækur. Bæði liðin spreyttu sig í Evrópukeppni nú í haust en féllu bæði út í 1. umferð. Kvennalið Vals í knattspymu bar ægis- hjálm yfir andstæðinga sína sl. sumar og varð íslandsmeistari í fyrsta skipti í 15 ár. Til hamingju, stelpur! Liðið lék einnig til úrslita í Bikarkeppni KSI gegn ÍBV og átti þar titil að verja, en átti því miður sinn slakasta dag og tapaði. Kvennaliðið er mjög sterkt og hefur því til viðbótar bæst liðsauki. Væntingar eru um að liðið geri a.m.k jafnvel á næsta ári og einnig er spennandi verkefni í Evr- ópukeppni framundan. Það verður keppikefli Vals að allir af- reksflokkar félagsins séu ávallt í Evrópu- keppni. Karlaliðið tókst enn og aftur á við mótlætið og vann 1. deildina í þriðja sinn á fjórum árum. Er einsdæmi að knatt- spymulið í m.fl. ka. takist á við lægð með þessum hætti. Valsmenn vona nú að þessu erfiðleikatímabili sé lokið og karlaliðið tryggi sig í sessi sem úrvals- deildarlið og sem eitt af bestu knatt- spyrnuliðum landsins á næstu árum. Að venju var íþróttamaður Vals valinn á gamlársdag. íris Andrésdóttir, fyrirliði m.fl. kv. í knattspymu fékk heiðurstitil- inn „íþróttamaður Vals árið 2003.“ Ákveðið var á síðasta ári að gera loka- tilraun til að hafa veglegt þorrablót Vals að Hlíðarenda nú í ár. Undirbúnings- nefndin var skipuð Óttari Felix Hauks- syni, Stefáni Hilmarssyni, Gunnari Möll- er, Elínu Konráðsdóttur og einnig lögðu Guðni Bergsson og Sveinn framkvæmda- stjóri gjörva hönd á verkið. f meðfömm nefndarinnar var verkefninu breytt og úr varð glæsileg Vorgleði Vals, sem haldin var í stóra íþróttasalnum þann 3. apríl sl. Veislustjóri var Jón Ólafsson. Skreyttur salur, sitjandi borðhald, skemmtiatriði Audda, söngur Stefáns Hilmarssonar og Eyjólfs Kristjánssonar við undirleik Jóns Ólafssonar og engir aðrir en Stuðmenn leikandi fyrir dansi, tryggðu frábæra skemmtun fyrir á fjórða hundrað gesti. Tókst þessi fmmraun og breyting á daufu þorrablóti í frábæra vorgleði með ein- dæmum vel og er undirbúningur fyrir næstu vorgleði þegar í gangi. Sumarbúðir í borg gengu mjög vel að þessu sinni eins og í fyrra. Var góð rekstrarafkoma af sumarbúðunum í ár eins og áður. Golfmót Vals fór fram í september sl. en fjöldi Valsmanna stunda þessa bráð- skemmtilegu íþrótt. Þetta var í 15nda sinn sem mótið er haldið, en leikið er um stærsta farandbikar landsins, sem Garðar Kjartansson gaf. Að þessu sinni mætti fjöldi Valsmanna og -kvenna til keppni' á Grafarholtsvöll þrátt fyrir austan rok og rigningu. Leikin var punktakeppni undir styrkri stjórn mótstjórans Ríkharðs Hrafnkelssonar, sem sjálfsögðu lék með í síðasta holli. Fór svo að mótstjórinn sigraði á 37 punktum, sem er stórglæsi- legur árangur miðað við veðuraðstæður og þá staðreynd að Rikki er aðeins með Valsmenn léttir í lund. Geir Sveinsson, Guðni Bergsson, Ólafur Stefánsson og Þorgrímur Þráinsson í góðum fíling. Valsblaðið 2004 9
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.