Valsblaðið - 01.05.2004, Page 14
Einstök afreksfjölskylda-
Valkyrjur, fram fram, frækið lið
Afreksfjölskyldan Guðríður Guðjónsdóttir, Guðjón Jónsson og Sigríður Sigurðardóttir
sitja í sófanum enfyrir aftan eru systurnar Hafdís og Díana Sigríður 2ja mánaða dótt-
ur Hafdísar situr ífanginu á afa sínttm.
Hún Sigga, Sigríður Sigurðardóttir, á
sérstaklega glæsilegan íþróttaferil að
baki með gullaldarliði Vals í hand-
knattleik á 7. áratugnum sem var nán-
ast ósigrandi árum saman og jafn-
framt lykilmaður í landsliðinu sem
hampaði m.a. Norðurlandameist-
aratitli árið 1964. Sama ár var Sigríð-
ur kjörin íþróttamaður ársins fyrst
kvenna hér á landi og er hingað til
eina konan sem hampað hefur þeim
titli í hópíþrótt. Reyndar hafa einung-
is þrjár konur hampað titlinum
íþróttamaður ársins hér á landi, en
auk Sigríðar hafa þær Ragnheiður
Runólfsdóttir, sundkona og Vala
Flosadóttir stangastökkvari náð þeim
árangri.
I ár eru 40 ár síðan Sigríður stóð á há-
tindi ferils síns, margfaldur meistari með
Val, Norðurlandameistari og síðast en
ekki síst íþróttamaður ársins 1964. Af
því tilefni óskaði Valsblaðið eftir viðtali
við Sigríði og dætur hennar þrjár, þær
Guðríði, Díönu og Hafdísi, sem allar
hafa fylgt í fótspor móður sinnar og lagt
stund á handbolta með frábærum ár-
angri, aðallega með Fram. Hin síðari ár
má segja að þær séu komnar heim á
Hlíðarenda, en Guðríður er nú þjálfari
meistaraflokks kvenna hjá Val, Díana
leikur með meistaraflokki kvenna hjá Val
og Hafdís sem er í barnsburðarleyfi hef-
ur leikið með Val undanfarin ár. Eigin-
maður Sigríðar er einnig þjóðþekktur af-
reksmaður í handbolta, Guðjón Jónsson
en hann lék árum saman bæði handbolta
og fótbolta með Fram og landsliðinu og
þjálfaði hjá Fram árum saman í hand-
bolta. Þegar ritstjóri Valsblaðsins hitti
þær mæðgur að máli eina kvöldstund á
haustmánuðum heima hjá þeim hjónum
Sigríði og Guðjóni, sýndi hann ekki
neinn sérstakan áhuga á því að ræða um
Val en hann blandaði sér engu að síður
oft í umræðurnar um stöðu handboltans
og þróun og íþróttaiðkun konu sinnar og
dætra. Handbolti er þessari afreksfjöl-
skyldu ákaflega hugfanginn en greinilega
eru skiptar skoðanir í fjölskyldunni um
þróun greinarinnar, Guðjón lætur van-
þóknun sína í ljós á auknum hraða í
handboltanum, sem hann segir leikmenn
ekki ráða við. Hann er ákaflega stoltur af
konu sinni og dætrum og afrekum þeirra
en greinilegt er að Valur er ekki hans
uppáhaldslið, Fram er hans félag, en
hann er sáttur við að dæturnar hafi valið
að leika fyrir Val hin síðari ár og þjálfa.
Iþróttir leika ákaflega stórt hlutverk í
lífi fjölskyldunnar. Dætumar allar, Guð-
ríður, Díana og Hafdís eru íþróttakennar-
ar að mennt og kenna allar íþróttir í
grunn- eða framhaldsskólum, þær vinna
allar við handboltaþjálfun og hafa frá
blautu barnsbeini stundað íþróttir af
kappi. Auk þess segjast þær horfa mikið
á íþróttir og fylgjast með íþróttum og
undir það taka foreldrar þeirra, Sigríður
og Guðjón. Guðríður og Hafdís hafa
einnig verið duglegar að hvetja börn sín
á þessu sviði og hafa þar tekið virkan
þátt í foreldrastarfi sem tengist íþrótta-
iðkun bamanna. Sigríður vinnur nú sem
húsvörður hjá KSÍ og Guðjón á einnig
afreksferil að baki og langan þjálfarafer-
il. Sem dæmi um geysilegan áhuga fjöl-
skyldunnar á íþróttum gerðum við stutt
hlé á viðtalinu til að ná að fylgjast með
íþróttafréttum í 10 fréttum sjónvarps.
Það reyndist þrautin þyngri að finna
heppilegan tíma fyrir viðtal við þessa
miklu fþróttafjölskyldu þar sem æfingar
og þjálfun taka mikinn tíma en loks
fundum við heppilegan tíma sem hent-
aði. Þegar við höfðum komið okkur öll
notalega fyrir barst talið að því hvað hafi
orðið til þess að Sigríður byrjaði að
leggja stund á íþróttir í æsku.
Fyrstu skrefin í íþrottum hjá Sigríði
„I gamla daga vorum við krakkarnir
alltaf að leika okkur úti með bolta,“ seg-
ir Sigríður. „Þá voru ekki tölvur eða
sjónvarp," skýtur Guðjón inn í til skýr-
14
Valsblaðið 2004