Valsblaðið - 01.05.2004, Side 17
Dícma Guðjónsdóttir í leik með Valsliðinu á móti Fram haustið 2004. (FKG)
tímabilið 2001 -2002 og árið eftir lék hún
með B liðinu í 2. deild en síðan tók hún
sér frí vegna bameigna en segist nú vera
hætt í handbolta. Hún byrjaði sinn hand-
boltaferil 13 ára hjá ÍR í 3. flokki og var
hjá félaginu í nokkur ár og lék m.a. í
meistaraflokki ÍR með Þorgerði Katrínu
núverandi menntamálaráðherra. „Ég fór
síðan 1985 í Fram og vann til margra
verðlauna með félaginu. Einnig æfði ég
fótbolta með Fram og lék í 2. deild. Ég
lék nokkra leiki með unglingalandsliðinu
og A landsliðinu í handbolta."
Díana byrjaði í handbolta 7 ára
Díana segist hafa byrjað að æfa hand-
bolta 7 ára með Fram. „Ég var aðeins í
fótbolta á yngri árum en hæfileikar mínir
vom ekki á því sviði, ég er hrikalega
örvfætt," segir hún og systur hennar
hlæja og taka fram að þar hafi hún rétt
fyrir sér. Guðríður segir að Díana sýni
oft góð tilþrif í fótbolta undanfarið á æf-
ingum hjá Val. „Ég hætti síðan á tímabili
hjá Fram og fór til FH þar sem ég fékk
aldrei tækifæri hjá þjálfaranum," segir
hún sposk á svip, eg Guðríður var þá
spilandi þjálfari hjá Fram. Díana lék aft-
ur á tímabili með Fram.
Díana í Val
Árið 2001 ákvað Díana að skipta yfir í
Val en þá var Guðríður nýráðin þjálfari
hjá félaginu. „Ég hringdi til mömmu til
Spánar á afmælisdaginn hennar þegar
hún var sextug og tilkynnti henni að ég
væri orðin Valsari og fannst henni það
mjög ánægjuleg afmælisgjöf," segir
Díana kímin og Sigríður kinkaði kolli
því til samþykkis. Díana segir að sér líði
mjög vel hjá Val núna, hópurinn sé góður
en brothættur þar sem meiðsli hrjái suma
leikmenn, aðrar eru í bameignum og enn
aðrar farnar til erlendra liða. Hún segir
ákveðin að stefnan í vetur sé klárlega á
að fara alla leið í úrslitakeppninni, það
hafi verið ógeðslega gaman að komast á
síðasta tímabili alla leið í úrslitakeppni
við ÍBV. „Við erum fáar í dag en við ætl-
um að standa saman en erum tilbúnar í
slaginn í vetur og ætlum okkar stóra
hluti,“ segir Díana ákveðin.
Frábær afmælisgjöf að fá
stelpurnar í Val
„Það var æðislegt að fá stelpumar í Val,
mjög góð tilfinning og frábær afmælis-
gjöf en ég varð sextug um það leyti,“
segir Sigríður og brosir breitt. Dætumar
eru allar íþróttafræðingar frá íþrótta-
kennaraskólanum á Laugarvatni, stund-
uðu allar dans og fimleika á yngri árum
og léku handbolta með Fram um árabil.
Leiðir þeiri'a hafa því í gegnum tíðina
legið saman og því ofur skiljanlegt að
þegar Guðríður var ráðin þjálfari hjá Val
þá fylgdu hinar systumar í kjölfarið,
enda greinilega mjög samhentar og góðir
félagar. Guðríður hefur langa reynslu af
þjálfun í handbolta, fyrst hjá Fram bæði í
yngri flokkunum og meistaraflokki
kvenna um árabil. Hafdís og Díana hafa
einnig lagt stund á þjálfun og starfa nú
báðar við þjálfun yngri flokka hjá HK en
þar er mikið uppbyggingarstarf í gangi
hjá kvennaflokkunum.
Skemmtilegir lírslitaleikir á móti
IBVí vor
Guðríður segir að úrslitaleikirnir við
IBV á síðasta tímabili hafí verið mjög
skemmtilegir og spennandi. „Strákamir í
Val léku til úrslita á móti Haukum og
við lékum til úrslita við ÍBV, en viður-
eignir okkar við ÍBV voru meira spenn-
andi en leikir strákanna við Hauka, leik-
gleðin var í fyrirrúmi hjá stelpunum og
ég lagði upp með það að við hefðum
gaman af þessu verkefni. Ennig voru
fleiri áhorfendur á kvennaleikjunum og
er það merkur áfangi í sögu kvenna-
handbolta hér á landi,“ segir hún stolt
yfír stelpunum sínum. Einnig hafi hand-
bolti kvenna orðið vinsælt sjónvarpsefni
en allir leikirnir boru sýndir beint í sjón-
varpi og ömggt að margir nýir stuðn-
ingsmenn Valsmanna hafi orðið til, bæði
í karla- og kvennaflokki. Díana segir að
enginn hafi búist við því að Valsarar
myndu standa í ÍBV, en ákveðið
reynsluleysi hafi komið þeim í koll í
lokin en þær segjast vera reynslunni rík-
ari eftir úrslitakeppnina og tilbúnar að
gera enn betur á þessu tímabili þótt
vissulega hafi breytingar síðan orðið á
hópnum. Hún segist hafa verið algjör-
lega búin eftir úrslitakeppnina, leikirnir
hafi reynt mikið á bæði líkamlega og
andlega. Sigríði fannst geysilega gaman
að fylgjast með úrslitakeppninni og hún
segist vera stolt af Valsstelpunum.
Úp handbolta í hraðbolta
„Handbolti í dag er samt allt önnur íþrótt
en í gamla daga þegar ég var að æfa,
hraðinn er miklu meiri og mér finnst
hraðinn vera orðinn allt of mikill í dag,“
segir Sigríður ákveðin og gagnrýnin á
þróun handboltans. Guðjón sem fylgst
hefur með viðtalinu álengdar getur ekki
á sér setið að segja skoðun sína og tekur
heilshugar undir með Sigríði og hristir
höfuðið yftr hraðanum í handboltanum í
dag, hann sé orðinn allt of mikill, leik-
menn ráði hreinlega ekki við þennan
hraða, réttara væri að breyta nafninu úr
handbolta í hraðbolta.
Valsblaðið 2004
17