Valsblaðið - 01.05.2004, Page 26

Valsblaðið - 01.05.2004, Page 26
Valsstelpurnar fagna einu af fjölmörgum mörkum sínum í sumar á sinn skemmtilega hátt. Meistarar ífögnum. Engin tvöfögn eins. (FKG) æfingu í samráði við þjálfara og jafnvel tekið að sér að stjórna einni og einni æf- ingu. „Við gætum líka mætt á leiki hjá stelpunum þegar við höfum tíma og fylgst með þeim og hvatt þær áfram. Ég er viss um að yngri krakkarnir leggja sig enn meira fram á æfingum og leikjum ef við styðjum þá og hvetjum áfram. Við gætum með þessu móti aukið tengslin við yngri flokkana og einnig hvatt krakk- ana að mæta á leiki hjá okkur.“ Byrjaði með strákunum í Leikni Talið berst aftur að uppvexti og æsku Laufeyjar í Breiðholtinu. Hún segist hafa verið algjör strákur á yngri árum og að bestu vinir hennar hafi verið strákar. „Ég var alltaf að leika við strákana og þegar þeir fóru á æfmgar hjá Leikni horfði ég bara fyrst á en smám saman fór ég að detta í þetta með þeim. Það gekk rosavel og ég æfði með strákunum í 6. og 5. flokki og fór með þeim á öll mót, t.d. Essómót og meira að segja í æfingaferð til Færeyja. Strákunum í hinum liðunum þótti sumum skrýtið að spila á móti stelpu, sérstaklega þegar ég lék á þá og skoraði, þeir urðu sumir frekar spældir man ég. Ég var alltaf eina stelpan í liðinu og ég man ekki eftir að hafa leikið á móti stelpum á þessum tíma. í 4. flokki var mér bannað að keppa með strákunum samkvæmt reglum KSÍ held ég. Það var rosalega spælandi og ég fór að leita að liði með kvennafótbolta, það kom ekki til greina að hætta í fótbolta. Mér fmnst þó enn þann dag í dag gaman að spila með strákunum og hef í gegnum tíðina oft mætt á æfingar með mínum gömlu félög- um úr Leikni. Það var frábært að æfa með strákunum og ég bý alla tíð að því.“ Eftirminnilegt atvik með strákunum i Leikni „Ég man eftir atviki úr leik í 5. flokki á móti Keflavík sem lýsir mér vel. Ég var búin að sóla einn strákinn úr Keflavík og hann var orðinn mjög pirraður á mér og eitt skiptið þegar ég var kominn fram hjá honum greip hann í treyjuna mína og hélt mér. Ég snöggreiddist, snéri mér við og kýldi hann á kjaftinn og allir gerðu grín að honum að láta stelpu slá sig, en hann gekk grátandi út af vellinum. Ég fékk ekki einu sinni spjald af því að ég var stelpa. Þessi saga situr í mér,“ segir strákastelpan Laufey og fmnst greinilega gaman að rifja strákatímabilið upp. Tólí ára tuddi í 4. flokki Vals Þegar Laufey fékk ekki lengur að keppa með strákunum hvöttu vinir hennar hana til að halda áfram í fótbolta. Hún leitaði fyrst að kvennabolta í nágrenninu, bæði hjá IR og Fylki en þar var ekkert að ger- ast. Hún athugaði líka Breiðablik en strætósamgöngur þangað voru slæmar. Hjá Fram var enginn kvennabolti og eftir stóð valið á milli KR og Vals og KR var lengra í burtu og þá var Valur eina félag- ið sem kom tii greina. „Ég byrjaði í 4. flokki Vals 1992 og það voru mikil við- brigði að byrja að æfa og keppa með stelpunum, maður gat nánast gert allt sem maður vildi og stelpumar kvörtuðu undan mér og sögðu mér að tuddast ekki svona mikið og ekki skjóta svona fast á markið. í þessum hópi vom t.d. Rakel Logadóttir og Erna sem eru enn þá að æfa í dag og Þóra Helgadóttir sem síðan fór í Breiðablik. Þegar ég var á gelgjunni bannaði ég foreldrum mínum að mæta á völlinn, en í dag koma þau á alla leiki sem þau geta og em þau bæði orðnir miklir Valsarar," segir Laufey stolt. í sannkölluðu gullliði í 3. flokki Laufey telur að skemmtilegasti tíminn í yngri flokkunum með Val hafi verið í 3. flokki þegar Ragna Lóa Stefánsdóttir var að þjálfa liðið. „Við unnum hreinlega allt á þessum árum og vorum með langbesta liðið á landinu. Ég fór á tvö pæjumót í Vestmannaeyjum í 3. flokki og fékk Lárusarbikarinn sem var veittur í fyrsta sinn, þ.e. var kosin besti leikmaður móts- ins og fannst það mikill heiður. Rakel og Ema voru í þessum sigursæla hópi og einnig spilaði Fríða (Málfríður Ema) með okkur, lék upp fyrir sig. Ég fór síð- an fljótlega að leika með meistaraflokki Vals, fór eiginlega beint í meistaraflokk úr 3. flokki,“ segir Laufey og fmnst ekki leiðinlegt að rifja þetta tímabil upp. Slæm meiðsli og erfiður tími Laufey meiddist illa í maí 1999 í undan- úrslitum í deildarbikar í leik við Hauka á gervigrasinu á Ásvöllum. Laufey man greinilega vel eftir þessum afdrifaríka at- burði og segir: „Ég man vel eftir að ég lenti eitthvað illa og heyrði brak, fór út af, fékk kælisprey og var sett aftur inn á, lenti fljótlega í smátæklingu og þá fór allt i klessu í hnénu og smellurinn eða brakið sat lengi í hausnum á mér á eftir, fyrst fór liðþófinn og síðan slitnuðu krossböndin. Þetta var rosaerfitt, viku fyrir byrjun ís- landsmótsins og ég missti alveg af öllu tímabilinu og var eitt ár að jafna mig af þessum meiðslunr. Ég var alveg miður mín þetta sumar og vildi ekki einu sinni koma að horfa á leiki hjá stelpunum, þetta var rosalega erfitt tímabil hjá mér, ég hafði hreinlega lifað fyrir fótbolta frá unga aldri. Þetta ár gerði ég ýmislegt annað, ferðaðist t.d. mikið, kynntist Óla mínum en var samt alltaf staðráðin í að halda áfram að spila fótbolta, ekki gefast upp,“ segir Laufey ákveðið en finnst sárt að rifja þetta tímabil upp. 26 Valsblaðið 2004

x

Valsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.