Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 39

Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 39
Eitip Þopgrím Þrainsson Willum Þór Þórsson nýr þjálfari meistaraflokks Vals stoltur á íslandsmóti innanhúss í nóvember 2004. Með honum á myndinni eru Halldór Eyþórsson liðstjóri og Bjarni Ólafur Eiríksson. (FKG) - Hvað stendur upp úrþínumferli sem leikmaður? „Hugurinn staldrar ekki við neitt sér- stakt en ég er mjög sáttur og þakklátur fyrir að hafa verið í þessu íþróttaum- hverfi. Þegar ég lít til baka hefði ég vilj- að hafa þann þroska sem leikmaður, sem ég hef öðlast í dag. Kannski þess vegna er ég að burðast við að þjálfa. Þótt ég gerði mér kannski ekki grein fyrir því sem leikmaður hvað þurfti virkilega að leggja á sig til að skara fram úr, veit ég það í dag og því vil ég koma til skila. Margir af fremstu þjálfurum heimsins í dag áttu fremur litlausan feril sem leik- menn. Ég tel að það blundi í þeim að skila einhverju til baka, ná frábærum ár- angri sem þjálfarar af því þeir gerðu það ekki sem léikmenn. Að sama skapi hafa margir sigursælir leikmenn hætt sáttir og ekki fundið löngun eða þörf til að snúa sér að þjálfun.“ Willum dvaldi í nokkra daga hjá Bolton á dögunum en hvað ætli standi upp úr eftir þá ferð. „Ég sagði við strák- ana í Val eftir ferðina: Góðu fréttirnar eru þær að leikmenn Bolton eru ekki að gera neitt merkilegra en þið úti á vellin- um. Þið eru margir hverjir alveg jafn góðir og þeir en þið eruð ekki að vinna undir sömu kringumstæðum. Slæmu fréttirnar eru þær að við þurfum meiri tíma og peninga til að ná sama árangri og þeir. Þarna skilur á milli. Það er unn- ið mjög heildrænt á allan hátt hjá Bolton og að vera ungur knattspymumaður í dag, með þau tækifæri sem eru í boði, hlýtur að vera algjör draumur. Ég er sannfærður um að Bolton er komið lengra en flest önnur lið á Bretlandi hvað varðar skipulag allra þátta sem lúta að þjálfun, s.s. næringarfræði, mark- miðssetningu, þjálffræði, uppeldisstefnu og svo mætti lengi telja. Þar er knatt- spyrnuakademía, eins og Arnór Guðjohnsen og félagar eru með á Islandi (leikmenn 13-18 ára). Hjá félaginu starfar sálfræðingur sem ber þann merkilega titil Framkvæmdastjóri árang- urs (performance executive). Hann ein- beitir sér alfarið að því, alla daga, með Sam Allardyce, framkvæmdastjóra Bolton og fleirum, að velta fyrir sér hvernig leikmenn og liðið geta bætt sig á öllum sviðum með betri árangur á leik- vellinum, sem og í lífinu sjálfur, að leið- arljósi. Þeir vinna eins og stórfyrirtæki á heimsvísu sem leggur mest upp úr mann- rækt og mannlegum gildum sem skapa aukna gleði og betri árangur. Bolton hef- ur gefið út handbók sem hefur að geyma allskyns viðmið varðandi framkomu, viðtöl við fjölmiðla, heilsurækt, grunn- þjálfun og hvernig leikmenn eiga að koma fram sem Bolton-menn. Guttamir í akademíunni borða með leikmönnum Bolton í hádeginu og vilja líkjast fyrir- myndunum, sem standa sig svo sannar- lega. Það er engin tilviljun að leikmenn eins og Huierra (37 ára), sem var kóngur í spænska boltanum til margra ára, Gary Speed, Les Ferdinard og fleiri vilja vera með Bolton, því þar er einstaklega vel að öllum málum staðið. Sam Allardyce var frábær í alla staði og mér var tekið opn- um örmum af öllum. Ég valsaði um hvar sem er og hvenær sem er. Sam gaf sér klukkutíma til að spjalla við mig og það var sérlega fróðlegt. Bolton leggur mikla áherslu á fjölskylduvænt andrúmsloft (mikilvægi fjölskyldunnar) og það var ánægjulega áberandi að finna fyrir því enda mér og Baldri Aðalsteinssyni, okk- ar leikmanni tekið opnum örmum.“ - Fannstu fyrir Guðna Bergs-anda í Bolton? „Guðni er á sér stalli í Bolton. Sam Allardyce sagði við mig: „Guðni sóaði bestu árum sínum með Bolton. Hann átti að leika með Manchester United eða öðrum stórliðum." Sam hefur rosalega mikið álit á Guðna og sagði það synd að hann væri ekki enn að spila fyrir Bolton. Ég vissi að Guðni væri vinsæll í Bolton en eftir að hafa verið á staðnum áttaði ég mig á því að hann er á forsetastalli þar. Það sem mér þykir frábært er hversu til- búinn Guðni er að opna þessa veröld fyr- ir okkur, ekki bara leikmönnum og þjálf- urum í Val, heldur liðsmönnum annarra liða. Hann hefur greitt götu margra ungra leikmanna sem hafa dvalið á Ree- bok hótelinu í Bolton og æft með félag- inu. Það myndu ekki allir hugsa svona, heldur halda þessum knattspynuheimi út af fyrir sig en Guðni galopnar þetta. Það er sérlega virðingarvert af hans hálfu.“ - Telurðu að þú getir breytt Val frá því að vera það jójó-lið sem það hefur óneit- anlega verið undanfarin ár? „Það er aldrei neitt öruggt í þessum efnum eins og hefur margoft komið á daginn. Ég tók við Val af því að ég ber óhemju mikla virðingu fyrir félaginu. Ég var alinn upp við Val sem stórt félag. A áttunda áratugnum fór ég á völlinn til að horfa á Val af því að Valur var með besta liðið, þá undir stjórn Youri Ilitschev. Og þannig hélt þetta áfram ansi lengi. I mín- um huga er Valur ríkt og stórt félag með mikla hefð og það er gott tækifæri fyrir mig að fá að þjálfa hjá félaginu." - Hvaða tilfinningu hefurðu fyrir fé- laginu, starfmu og leikmönnum eftir að hafa verið við stjórnvölinn í rúma tvo mánuði? „Sá kraftur sem býr í félaginu núna verður mikill styrkur fyrir liðið. Ég finn fyrir ákveðinni uppsveiflu og menn vilja brjóta upp þetta mynstur sem hefur verið við lýði undanfarin ár. Svona kraft þarf að nýta vel.“ - Hvaða leikmenn hafa bœst íhópinn? „Kjartan Sturluson markvörður úr Ualsblaðið 2004 39
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.