Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 70

Valsblaðið - 01.05.2004, Síða 70
Ki»WMjð Val Viital við Sævald Bjarnason þjálfara í yngri flokkum Vals í körfubolta „Þú uppskerð eins og þú sáir, “ segir Sœvaldur Bjarnason þjálfari. Það hefur ekki farið fram hjá Vals- mönnum að öflugt uppbyggingarstarf hefur verið í yngri flokkum félgsins í körfubolta undanfarin ár. Fjölgað hef- ur í flokkunum og árangur hefur víða verið mjög góður. Þeir sem fylgst hafa með körfunni hjá Val hafa eflaust tek- ið eftir snaggaralegum þjálfara liðsins, Sævaldi Bjarnasyni, sem smitað hefur út frá sér með metnaði og áhuga. Valsblaðið tók Sævald Bjarnason þjálfara tali og spurðist fyrir um ættir og uppruna hans og uppbygginguna í körfu- boltanum. Sævaldur er að mestu leyti alinn upp í Breiðholtinu og byrjaði að æfa handbolta í 7. bekk hjá Leikni en fannst það ekki skemmtilegt og færði sig yfir í körfuna hjá ÍR í 8. bekk. „Ég æfði fram í 10. bekk í IR en þá fluttist ég yfir í Grafarvoginn og fór að stunda körfubolta hjá Fjölni í 10. bekk og spilaði þá einnig með drengjaflokki og meistaraflokki á þessum árum. Ég spilaði mína fyrstu meistara- flokksleiki með Fjölni í Grafarvogi. Skemmtilegustu stundimar í körfunni sem leikmaður fundust mér alltaf vera mótin sem maður fór út á land að keppa. Það var alltaf mottóið hjá þjálfaranum að við værum allir svo góðir vinir og að ailir standi saman. Einnig em mér mjög minnistæð verðlaun sem ég fékk fyrir mestu framfarimar 1994 en þá var ég í 9. bekk. Mér fínnast framfararverðlaun ótrúlega mikilvæg verðlaun, því það segir að maður uppsker eins og maður sáir.“ - Hvenœr hófstu störf við þjálfun í körfubolta og segðu í stuttu máli frá þjálfaraferli þínum? „Ég byrjaði að þjálfa 1998 og þá var ég fyrst sem aðstoðarþjálfari hjá Hirti Hjartarsyni sem er uppalinn Mosfelling- ur og Mosfellingar voru þá að stofna körfuboltadeiid. Ekki voru margar æf- ingar liðnar þegar ég fór að taka við stjórninni á æfingum, því Hjörtur var á þessum tfma á fullu í körfunni hérna í Val. Og síðan eftir mánuðinn þá var ég farinn að þjálfa á fullu tvo flokka félags- ins, drengja- og unglingaflokk, og í raun var ég nægilega gamall sjálfur til þess að spila með. Eftir þetta fyrsta ár í Aft- ureldinu þá fékk Gústi mig til þess að koma í Val (Agúst S Björgvinsson). Hann leit á mig sem mjög áhugasaman þjálfara sem hafði metnað til þess að gera vel. Gústi fékk mig til að koma og þjálfa 3 flokka félagsins. Fyrst var ég 2 ár í Val, en árið 2000 færði ég mig um set og fór upp á Akranes sem aðstoðar- þjálfari hjá Brynjari Karli en hann var þá að þjálfa alla flokka félagsins. Það var mér ótrúlega lærdómsríkt ár. Ég flutti uppeftir og lærði marga hluti á þessum stutta tíma, bæði góða og slæma. En Brynjar Karl hætti störfum um áramót sem þjálfari meistaraflokks og ég tók það verkefni að mér í 2 mán- uði, en eftir ákveðin vandamál í stjórn og þess háttar á Skaganum þá ákvað ég að koma aftur í bæinn, og Gústi útveg- aði mér aðstoðarþjálfaraverkefni hjá honum út það tímabil. Tímabilið á eftir vorum við Gústi saman með flesta yngri flokka Vals og var ég aðstoðarþjálfari hjá honum í meistaraflokki. Síðasta árið hef ég síðan verið þjálfari 3-4 yngri flokka félagsins með ágætum árangri." - Hvernig hefur verið staðið að upp- byggingu í yngri flokkum Vals í körfu- bolta undanfarið? „Valur á stóra og merkilega sögu og mig langaði til þess að komast í gótt fé- lag sem hefur metnað fyrir yngri flokk- unum, því ég tel það vera bestu leiðina tii þess að byggja upp meistaraflokka að hafa öfluga yngri flokka sem skapa hefð- ir og halda meistarflokknum við efnið. Uppbygging í féiaginu hefur verið stöðug upp á við frá því ég hóf störf í Val. Þegar Gústi bytjaði á þessu fyrir 10 árum þá voru yngri flokkamir í lægð. Núna hefur okkur tekist með samsilltu átaki að fjölga í öllum flokkum og stefna á að búa til leikmenn sem em Valsarar, duglegir strákar sem hafa góð undirstöðuatriði og leggja sig alltaf fram. Ég hef alltaf haft það að leiðarljósi sem þjálfari að iðkend- ur bæti sig í undirstöðuatriðum körfubolt- ans fyrst og fremst og ég segi það að um leið og maður er með iðkendur sem em með góða tækni og góð undirstöðuatriði þá er alltaf hægt að byggja ofan á það með góðri þjálfun. Alveg eins og maður byggir ekki hús nema hafa fyrst byggt stöðugan og góðan gmnn. Frá því ég kom í félagið hafa framfarir verið gríðar- 70 Valsblaðið 2004
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92

x

Valsblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Valsblaðið
https://timarit.is/publication/399

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.