Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Síða 17

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Síða 17
E LSA S IGR ÍÐUR JÓNSDÓTT I R 17 Sjálfstæðisflokkurinn menntamálaráðuneytið 1983 og Ragnhildur Helgadóttir varð menntamálaráðherra. yfir vötnunum sveif að nú ætti að hreinsa til. Þetta voru sérstakir tímar í samfélaginu, mikil verðbólga, átök og óróleiki. Ég varð til dæmis fyrir því að unglingar köstuðu í mig tómötum og eggjum vegna samræmdu prófanna þegar ég var að innleiða normalkúrfuna sem mælingafræðilegt fyrirbæri. Ýmsir skólamenn ólu á þessari andstöðu unglinganna. Þessi átök eru stundum að hluta kennd við sögu- kennsluskammdegið, sem lyktaði með því að samfélagsfræðin var rekin út í ystu myrkur. Blaðamenn, stjórnmálamenn og alþingismenn tóku þátt í þessari umræðu, sem oft tók á sig skrítna mynd. Í samfélagsfræðinni vildum við kenna til skilnings. við vildum að í landafræði lærðu börn til dæmis um líf í heitu landi og köldu landi, veltu málum fyrir sér, fyndu hvað væri sameiginlegt og hvað væri öðru vísi. Sem sagt, menn vildu kenna krökkunum að hugsa en ekki bara læra staðreyndir utan að eins og lengi hafði tíðkast. Einn námspakkinn fjallaði um samfélag bavíana og mark- miðið var að leggja grunn að pælingum hjá nemendunum. Þetta námsefni var byggt á kenningum Jerome Bruners og fleiri fræðimanna. En í dagblöðin var skrifað um hve illa væri komið fyrir íslenskum skólum sem kenndu nú um samfélag apa en ekki um hetjur Sturlungaaldar. Þannig smáfjaraði undan skólarannsóknadeildinni, fyrst var breytt um nafn á henni og hún nefnd skólaþróunardeild og svo var hún að lokum lögð niður. Andri varð próf- essor við Háskóla Íslands og endurstofnaði uppeldisfræðina þar. Hann settist í emb- ætti Matthíasar Jónassonar og vann merkilegt starf við að endurskipuleggja kennslu- réttindanámið og byggði þar upp ársnám fyrir þá sem höfðu háskólapróf fyrir. Doktorsprófið Ég var svo heppinn að mér bauðst að fara í doktorsnám, bæði studdi ráðuneytið mig og einnig háskólinn í Champaign-Urbana. Ég vann þar við merkilega stofnun sem ég lærði mikið af og lauk þar doktorsprófi 1982. Doktorsritgerðin mín fjallaði um þekkingarfræðilegar forsendur mats og ég las mikið heimspeki, þekkingarfræði og um grunn mælingafræðanna. Ég skrifaði ritgerðina mína eiginlega um átökin milli megindlegra og eigindlegra matsaðferða. Samræmdu prófin, sem ég hafði unnið við, voru kveikjan að ritgerðinni og ég skoðaði gagnrýnið samræmd próf bæði hér á landi og almennt. Ég var hræddur um að prófin væru of stýrandi og fór að kafa ofan í eðli mælinga og mælingafræði. Ritgerðin mín heitir A Dialectical Perspective on Evaluation as Evolution: A Critical View of Assessment in Icelandic Schools. Það sem ég var í rauninni að segja var að mat væri óumflýjanlegt en að matið þyrfti að vera gagnvirkt og það væri hluti af þróun. Manneskjan væri alltaf að þróast og menntast en væri matið alltaf á annan veginn og viðmiðin ákveðin af einhverjum öðrum væri hætta á stöðnun. virkt samband milli þess sem metur og hins sem er metinn (t.d. kennara og nemanda) er forsenda fyrir áframhaldandi menntun eða þróun. Ég tengdi þessa umræðu og hugs- un mína um mat við mannlegt eðli. Ég velti mikið fyrir mér hvað það væri sem greindi okkur frá öðrum dýrum. Það er sjálfsagt hægt að finna ótalmargt, en það er meðal annars þetta mat, að við getum farið út fyrir okkur sjálf og jafnvel lengra en það. Það er talað um metaplan í sambandi við þetta. Það var hluti af mínum pælingum, að mat
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.