Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Síða 24

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Síða 24
KENNARAMENNTUN Á T ÍMAMÓTUM – FRÁ JAÐR I AÐ M IÐ JU 24 vissi svo lítið. Laxness gerir á nokkrum stöðum grín að kennurum svo að þessi afstaða hefur verið svolítið landlæg. En þetta er að breytast. Það er ekki eingöngu sameiningin við Háskóla Íslands sem veldur því, heldur einnig nýsamþykkt lög á Alþingi þar sem gert er ráð fyrir að allir kennarar hafi meistarapróf. Í því felst viðurkenning á því að kennarastarfið sé erfitt og ekki síður flókið en til dæmis að teikna hús fyrir fólk eða byggja brýr. Ég upplifi þetta sem sigur. fólk er að átta sig á því að meiri menntun fyrir allt samfélagið eykur hag þjóðarinnar og einstaklinganna og skapar þeim samkeppn- ismöguleika í veröldinni. Mig langar til að heyra skoðanir þínar á því hvernig þróunin í Kennaraháskóla Íslands hefði orðið ef við hefðum ekki farið út í sameininguna? Ég held að það hefði orðið eilíf barátta fyrir tilveru okkar. Auðvitað er þeirri bar- áttu ekki lokið, við höfum barist með kjafti og klóm til þess að koma okkur áfram í rannsóknum og ná því að verða jafngóður háskóli á okkar sviði og Háskóli Íslands. við höfum líka verið að berjast fyrir menntarannsóknum. fyrir fáeinum árum vorum við Allyson Mcdonald að ræða um menntarannsóknir á fundi með starfsfólki Rannís. og það tæpast skildi um hvað við vorum að tala eða til hvers gera þyrfti rannsóknir í menntamálum. Mennta- og skólamál hafa nefnilega ákveðna sérstöðu í huga fólks. Allir hafa verið í skóla og öllum finnst þeir vita hvernig skólar eigi að vera eða ekki að vera. Þess vegna finnst mörgum alveg óþarfi að vera að gera einhverjar rannsóknir á skólastarfi og menntun. Þetta er til dæmis áberandi í greinargerðum með frumvörp- um til laga um leik-, grunn- og framhaldsskóla sem nú hafa verið samþykkt á Alþingi. Lítið er minnst á rannsóknir sem rökstuðning fyrir því hvernig haga skuli málum. Það er því óhemju verk að vinna. Eftir heimsókn okkar Allyson til Rannís og vegna baráttu hennar í vísinda- og tækniráði fengum við því áorkað að úttekt var gerð á menntarannsóknum á Íslandi2. Það var úthugsuð aðferð af okkar hálfu til þess að fá viðurkennda þessa þörf fyrir menntarannsóknir. og þetta er að skila sér, hjá vísinda- og tækniráði tróna menntarannsóknir nú ofarlega. En það verður mikil vinna og erfitt að þróa menntavísindasviðið, nú verðum við komin í návígi og samkeppni við hin sviðin fjögur innan Háskóla Íslands. Mér heyrist þú vera bjartsýnn á samstarfið við Háskóla Íslands. Auðvitað byggist allt samstarf á einstaklingunum sjálfum og ég sé fyrir mér að í sumum greinum muni takast vel til en síður annars staðar. Annars eru viðhorf að breytast. Ég var á fundi um daginn með raungreinakennurum héðan og deildarfor- seta raunvísindadeildar og fleiri fulltrúum úr Háskóla Íslands. Raunvísindin hafa nú stundum hreykt sér svolítið og þaðan hafa komið harðir dómar um stærðfræðina og skólakerfið. En þarna var ég með ungu fólki sem mér fannst hafa önnur viðhorf en hafa tíðkast. Þetta unga fólk er alið upp við 28 framhalds- og fjölbrautaskóla. Það gefur talsvert aðra sýn en þegar fyrst og fremst var einn menntaskóli á sviðinu eins og 2 Rannsóknamiðstöð Íslands og menntamálaráðuneytið (maí, 2005). úttekt á rannsóknum á sviði fræðslu og menntamála. Lokaskýrsla. Reykjavík: Rannsóknamiðstöð Íslands og menntamálaráðu- neytið.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97

x

Uppeldi og menntun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.