Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 29
29
BRyNhILDUR ÞÓRARINSDÓTTIR
Kímnigáfuð börn
Gagnsemi kímni og fyndinna bóka í skólastofunni
Markviss notkun kímni í uppeldis- og skólastarfi hefur marga kosti. Leikur og vinna sem
grundvallast á kímni örvar ímyndunarafl barna, hvetur þau til að læra eitthvað nýtt og hjálpar
þeim að takast á við erfið verkefni. Kímni hefur veigamiklu hlutverki að gegna við uppbygg-
ingu sjálfsmyndar og sjálfstrausts og er að sama skapi þýðingarmikill þáttur félagsþroska og
félagsmótunar. Þannig getur kímni barna gefið mikilsverðar vísbendingar um þroska þeirra.
Hins vegar virðast kennarar veigra sér við að nota fyndnar sögur handa börnum enda líður
efni sem kitlar hláturtaugarnar oft fyrir fordóma; það er talið léttvægt án þess að litið sé undir
yfirborðið eða skoðað hvaða gildi kímnin hefur í sjálfri sér. Hér er fjallað um kímni í barnabók-
menntum og það gagn sem hafa má af skemmtilegum barnabókum í skólastofunni. Rétt er að
vekja athygli á orðinu kímni sem hér er notað í sömu merkingu og tökuorðið „húmor“. Kímni
er ekki sömu merkingar og kómík. Kímni felst ekki síður í að hlæja með en að. Hún byggist á
skilningi, þekkingu og ímyndunarafli þess sem hlær.
inn gang ur
Einn vinsælasti leikurinn þegar ég var á leikskólanum Hlíðaborg fyrir meira en þrjátíu
árum kallaðist vinnuleikurinn. við börnin sátum í hring á gólfinu og völdum okkur
númer en fóstrurnar (sem þá gegndu því nafni) flettu í stórri möppu þar sem hvert
númer merkti ákveðið starfsheiti. Hláturinn sem gall við af gólfinu stafaði af því sem
börn stóðu í trú um árið 1974; að strákar gætu ekki orðið hjúkrunarkonur og stelpur gætu ekki orðið forstjórar. vinnuhappdrættið var eingöngu fyndið þegar eitthvað
passaði ekki, þegar ósamræmi var milli barns og framtíðarstarfs. Kímnigáfa okkar
ormanna var fullkomlega háð þekkingu okkar á samfélaginu.
vinnuleikurinn er lýsandi dæmi um hvernig skopskyn barna mótast samhliða vax-
andi skilningi þeirra á sjálfum sér og samfélaginu. Kímni barna veltur á þekkingu
þeirra og reynslu, þau skynja hvað er fyndið út frá því sem þau hafa lært. Börn skilja
til dæmis ekki brandara nema þau skilji hugtökin sem notuð eru og hegðunarmynstrið sem hæðst er að. Hlátur okkar Hlíðaborgara byggðist á því að við höfðum uppgötvað
hver félagsleg hlutverk karla og kvenna voru um miðjan áttunda áratuginn og þau
Uppeldi og menntun
17. árgangur 1. hefti, 2008