Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Side 30

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Side 30
30 voru í engu samræmi við þau sem við lentum á í möppunni. Það var einmitt ósam- ræmið sem orsakaði hláturinn; það sem var ekki í samræmi við ríkjandi hefðir var fyndið. Kímni, ekki síst sú sem ætluð er börnum, grundvallast nefnilega á misræmi af einhverju tagi, einhverju sem er óviðeigandi eða ekki á réttum stað. Tvíræðni, þar sem merkingarsvið eru látin skarast til þess að framkalla hlátur, er til dæmis algeng undirstaða kímni (Casson, 1997). Í raun virðist flest það sem fer á svig við reglur hafa tilhneigingu til að vera fyndið. Reglurnar geta verið á hvaða sviði sem er, skráðar jafnt sem óskráðar. Þær geta snert málnotkun, hegðun, heilbrigða skynsemi og samskipti; viðteknar venjur hvers samfélags (Klein, 2003). Hér á eftir eru raktar kenningar um gildi kímni fyrir börn og rök færð fyrir því að kímni gegni mikilvægu hlutverki í þroska barna. Í framhaldi af því er litið á kenning- ar um tengsl aldurs og þroska barna við skilning þeirra á tilteknum flokkum kímni. fjallað er um kímni í barnabókum, helstu flokka hennar og birtingarmyndir. Að því búnu er vikið að skólastarfinu og skoðað hvaða hlutverki kímni getur þjónað við kennslu. Síðast en ekki síst er litið í nokkrar nýlegar, fyndnar, íslenskar barnabækur sem gagnast geta í skólastofunni, einkum í bókmenntum, samfélagsfræði og lífsleikni. Þessar námsgreinar snúast, rétt eins og kímni, um skilning nemandans á sjálfum sér og samfélaginu, og hæfileika hans til að setja sig í spor annarra. Meðal annars er skoð- að hvernig kímni í barnabókum nýtist börnum við að byggja upp sjálfsmynd og átta sig á umhverfi sínu, samtímis því sem hún örvar ímyndunarafl þeirra og veitir þeim þjálfun í að greina texta og orðræðu. Í greininni er fyrst og fremst litið á kímni sem félagslegt fyrirbæri sem bókmennt- ir endurspegla og miðla. Teflt er saman tveimur fræðigreinum, bókmenntafræði og uppeldisfræði, með það að markmiði að sýna fram á gagnsemi gamansins fyrir bæði nemendur og kennara. Sjónarhornið er þó fyrst og fremst bókmenntafræðinnar, en þar er val viðfangsefnis óaðskiljanlegur hluti aðferðafræðinnar. Bækurnar sem hér er fjallað um eru því hvorki heimildir í merkingunni kenningar og fyrri rannsóknir né úrtak úr þýði allra hugsanlegra barnabóka. Bækurnar eru valdar vegna þess að þær eru skrifaðar á tiltekinn hátt og njóta vinsælda barna. Þær eru valdar vegna þess að þær eru kjörnar til notkunar í skólastarfi. Á sama hátt er val þeirra fræðimanna sem vísað er til háð eðli greinarinnar. Ekki er ætlunin að kafa í kenningar þeirra eða prófa þær með raunvísindalegum hætti, heldur nýta innsæi viðkomandi kenningasmiða að því marki sem það gagnast til að varpa ljósi á viðfangsefnið. fræðilEgur grunnur Kenningar um gagnsemi kímni finna má yfir hundrað kenningar um kímni, þær elstu frá dögum forn-Grikkja (sjá onofrey, 2006). Hér er stuðst við þrjá útgangspunkta úr kímnifræðunum við rann- sóknir á barnamenningu; kenningar um áhrif eða gagnsemi kímni, kenningar um tengsl kímni og þroska barna, og loks kenningar um gerðir kímni. Tvær kenningar eru hvað þekktastar þegar litið er á áhrif kímni, annars vegar að KÍMNIGÁFUÐ BÖRN

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.