Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Side 60

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Side 60
60 UMBROT fjölbreyttari kennsluaðferðir. of mikil regludýrkun, ekki þarf að fara eftir náms- áætlun algjörlega alltaf. Þú mættir reyna að einbeita þér meira að okkur í stað þess að fara yfir endalaus verkefni og vera stíf í að fara eftir kennsluáætlun. Það er hægt að gera námið mun skemmtilegra. T.d. hægt að horfa á video o.fl. Annars finnst mér þú góður kennari. vera opnari fyrir breytingum. Hafa sjálfstæðan vilja – ekki alltaf vitna í að það þurfi að bera efnið undir aðra kennara. vera aðeins afslappaðri – taka þessu öllu með ró – námsáætlun má alveg klikka. Það er ekki nauðsynlegt að mæta á mín- útunni sem hringt er inn í kennslustund. HÆTTA að láta okkur gera einhverjar kannanir á þér… ER ÞETTA EKKI KoMIÐ GoTT? Mér fundust svör nemenda vera á fremur vinsamlegum nótum, heiðarleg og einlæg, og þeim mun betri gagnrýni fyrir vikið. Því var mér afar brugðið þegar ég rakst á heldur óskemmtilegan pistil um sjálfa mig á vefsíðu bekkjarins. Þegar hér er komið sögu lendi ég í dálitlum vandræðum því engar eru dagbók- arfærslurnar. Það kemur einkum til af tvennu: Í fyrsta lagi að á þessum tíma taldi ég þetta óvænta atvik ekki eiga erindi í gagnasöfnun mína því það henti mig heima í stofu. Hin ástæðan var sú, og öllu veigameiri, að í raun langaði mig ekki til að deila þessu óvænta atviki með nokkrum manni, og allra síst að gera það „ódauðlegt“ með því að fjalla um það á prenti. Ég tók þetta mjög nærri mér og vildi helst að orðin hyrfu af skjánum. Svo fór ekki, og í ljósi eftirmálans taldi ég þarft að gera þessu óvænta atviki skil. Það sem á eftir kemur er því endurlit sem byggir einkum á minni. Í páskafríinu leit ég inn á vefsíðu umsjónarbekkjarins og við mér blasti nafn mitt, skrifað fullum fetum. Ég var kynnt til sögu sem formaður regludýrkendafélagsins, þar sem væru einir tólf aðrir meðlimir. Í kjölfarið fylgdi óskemmtileg lýsing sem er svo ómerkileg að mér finnst engin ástæða til að tíunda hana frekar. Ég var afar gáttuð að sjá hver skrifaði sig fyrir þessum orðum en ég hefði svo sem ekki getað trúað því upp á neinn nemanda minn. Engu að síður höfðu nokkrir þeirra gert athugasemdir við þessi skrif og fannst þau augljóslega sniðug. Mér var nokkuð ljóst að nemendur mínir hafa vart ætlað mér að sjá þessi skrif og fannst mér sumpart eins og ég væri að ráðast inn í vígi þeirra. Þetta olli mér nokkrum heilabrotum. Nei, það er ekki satt. Þetta olli mér andvökunóttum og miklu tilfinningastríði. Þegar ég skoðaði betur skömmina á skjánum rak ég augun í dagsetninguna á blogg- færslunni, hún var skrifuð þriðjudaginn 4. apríl, eða tveimur dögum áður en ég bað nemendur mína um ráð. Mánudaginn 3. apríl hafði ég lagt próf fyrir bekkinn. Tveir nemenda minna mættu ekki í það próf, en ég hafði séð þá tilsýndar þegar ég var á leið inn í stofuna. Þeir gengu á móti mér en sneru báðir við um leið og þeir sáu mig og hröðuðu sér inn í nærliggjandi stofu. Daginn eftir skrifaði annar þeirra þennan óskemmtilega texta. Ég velti því fyrir mér hvernig ég ætti að bregðast við. Auðvitað segja nemendur ýmislegt óskemmtilegt um kennarana við félaga sína, ég hafði svo sem heyrt sitthvað útundan mér. Ég gat hins vegar ekki látið þetta eiga sig, þessi skrif lágu á mér eins og

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.