Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 63

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 63
63 JÓNA GUÐBJÖRG TORFADÓTTIR, hAFDÍS INGvARSDÓTTIR skólastofunni (Watson og Ecken, 2003). Hins vegar kunna slíkar áherslur að horfa öðruvísi við nemendum á framhaldsskólastigi en á grunnskólastigi. Unglingnum er mikið í mun að öðlast sess í jafningjahópnum sem hann vill samsama sig með og hljóta viðurkenningu hjá. Þá er ekki óalgengt að unglingurinn snúist gegn foreldrum sínum og öðru yfirvaldi (Erikson, 1968, 1984). Anga af slíkri uppreisn kann vel að sjá stað í hörðum andmælum við reglum og venjum skólans sem og í gildishlöðnu orða- vali. Ummælin um mig inni á vefsíðu nemenda eru prýðilegt dæmi um andspyrnu nemandans við regluveldinu. Þá er næsta víst að hann hefur lítið leitt hugann að til- finningum mínum eða líðan þegar hann samdi pistilinn. Umræddur nemandi sýndi að hann væri góður námsmaður og ágætlega greindur, þ.e. vitsmunaþroski hans var með ágætum. Af þessu tiltekna athæfi hans má hins vegar draga þá ályktun að hann hafi hugsanlega verið staddur á þeim stað í félags- og siðgæðisþroska að vera fyrst og fremst upptekinn af sjálfum sér og því hvernig hann kæmi félögum sínum fyrir sjónir. Hvað gildishlaðið orðaval snertir, þá tók ég dæmi hér að framan um einn af nem- endum mínum sem tók býsna sterkt til orða í svari við einni spurningunni sem ég lagði fyrir nemendurna. Í annað sinn var svar hans af allt öðrum toga og engu líkara en um tvo ólíka nemendur væri að ræða, en ég vissi betur. Ólík svör nemandans eru ennfremur prýðilegt dæmi um dagsform, þ.e.a.s. svörin eru ekki síst til marks um líð- an nemandans og skoðanir þann daginn sem spurningarnar eru lagðar fyrir. Í hnotskurn Í ljósi framangreindrar umræðu vil ég leitast við að draga saman svörin við þeim rannsóknarspurningum sem lagt var upp með. fyrsta spurningin var: Hvernig bregst ég við óvæntum atvikum í bekkjarstarfi? Mér sýnist ég bregðast við af nokkru óöryggi og það veldur stífni og ósveigjanleika í samskiptum; í vafamálum vil ég hafa samráð við samkennara mína og ég nefni t.d. kennsluáætlun til þess að útskýra fyrir nemendum hvers vegna hlutirnir eru á einn veg frekar en annan. önnur spurningin var: Hvernig finnst mér ég þurfa að bregðast við óvæntum atvikum í bekkjarstarfi? Ég tel mig þurfa að vera duglegri að beita virkri hlustun í samræðum mínum við nemendur svo að ég verði næmari á þarfir þeirra; ég þarf að heyra hvað býr að baki orðum nemendanna til þess að geta brugðist við á réttum forsendum. Ég tel að lykillinn sé virk hlustun því að með henni færi ég athyglina frá sjálfri mér og yfir á nemendur mína. Loks var þriðja spurningin: Hvernig vil ég bregðast við óvæntum atvikum í bekkjarstarfi? Ég vil vera afslappaðri í samskiptum mínum við nemendur og bregðast við af meira öryggi en áður. loKaorð Í þessari grein hef ég leitast við að greina heiðarlega og einlæglega frá reynslu minni af samskiptum við nemendur. Ég vildi leitast við að skilja betur samskipti mín við nemendurna og þróa þau til betri vegar, sem er meginmarkmið starfendarannsókna (Hafþór Guðjónsson, 2008b). Starfendarannsóknin gerði mér kleift að verða mun vísari um hverju væri ábótavant í samskiptum mínum við nemendur en það er vissu-

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.