Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Page 64
64
UMBROT
lega fyrsta skrefið í hvers kyns breytinga- og þróunarstarfi, þ.e. að vita hvað þarfnast
breytinga. Ég er því betur í stakk búin til að gera breytingar í ljósi þess lærdóms sem
ég hef dregið af starfendarannsókn minni. Mér þykir sýnt hversu mikilvægt það er að
beita virkri hlustun í samræðum við nemendur. Aðeins með þeim hætti get ég heyrt
hvað nemendur eru raunverulega að segja mér, sem kann að vera dýpra og meira
en það sem felst aðeins í orðanna hljóðan. Með þennan lærdóm í farteskinu geng ég
öruggari á hönd nýrra ævintýra þar sem bíða mín aðrar og fleiri raddir nemenda, og
hlusta.
Ég leitaðist við í starfendarannsókn minni að brúa bilið á milli kenningar, rann-
sóknar og framkvæmdar (McNiff, 2002). Ég var hvort tveggja í senn rannsakandi og
meginviðfangsefni rannsóknar sem gerir að verkum að frásögn mín geymir einstaka
reynslu, mína eigin reynslu, sem er ekki á færi annarra að greina frá af sömu dýpt
(Cochran-Smith og Lytle, 1996). Það er sömuleiðis styrkur rannsóknarinnar. Aðeins
ég sjálf get greint frá hugsunum mínum, viðhorfum, tilfinningum og líðan með þeim
hætti sem raun ber vitni. Rannsóknin er ennfremur upplifun nýliða á samskiptum við
nemendur og getur sem slík orðið stuðningur fyrir þá kennara sem eru að stíga sín
fyrstu skref í starfi. vonandi verður hún einnig hvatning fyrir kennara til þess að ræða
um starf sitt á opinskárri hátt. Ég trúi því seint að mín reynsla sé einsdæmi.
Það hefði áreiðanlega reynst mér léttara líf að einbeita mér „einungis“ að því að
læra að kenna, enda er kennslan ein og sér oftast ærinn starfi fyrir nýliða. Starfenda-
rannsókn er vissulega viðbót við það álag sem kennslan kann að vera fyrir nýliðann
og hún kallar á mikla sjálfsskoðun sem getur reynst honum erfið. Hún var mér a.m.k.
sársaukafull. Því hlýt ég að vara nýliða við að ráðast í slíka rannsókn sem þessa. Ég átti
hins vegar því láni að fagna að vera þátttakandi í rannsóknarhópi kennara við skólann
sem var að vinna starfendarannsókn. Þar fór fram bæði fagleg og einlæg umræða um
kennslustarfið sem gerði mér ómetanlegt gagn og þar eignaðist ég bandamann sem
reyndist mér góður gagnrýnandi og mikilsverður trúnaðarvinur í starfi. Eftir þessa
reynslu mína er ég sannfærðari en nokkru sinni áður um að góð samskipti í skólastof-
unni stuðli að öflugu kennslu- og námsumhverfi. Ég stefni þangað, einn dag í einu.
ÞaKKarorð
Mörgum vil ég þakka en efst á blaði eru nemendur mínir sem gerðu mér þessa rann-
sókn mögulega. Þeir voru einatt tilbúnir að svara öllum mínum spurningum og létu
það yfir sig ganga að ég eltist við þá vopnuð upptökuvél og þrífæti. Þá á bandamað-
ur minn miklar þakkir skyldar, sem og rannsóknarhópurinn góði sem samanstóð af
kennurum og skólastjórnendum. Loks vilja höfundar þakka ritrýnum Uppeldis og
menntunar fyrir gagnlegar ábendingar.