Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Side 70

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Side 70
70 FAGLEGT S JÁ LFSTRAUST GRUNNSKÓLAKENNARA Rannsóknarspurningar þessa hluta snúast um það hvort, og þá í hvaða mæli, fag- legt sjálfstraust íslenskra kennara hafi áhrif á kulnun og vinnugleði hjá þeim og hvort þættir í starfsumhverfi þeirra hafi einnig áhrif í því samhengi. Einnig er leitað svara við því hversu vel bandaríski spurningalistinn sem notaður var henti til að meta fag- legt sjálfstraust hjá íslenskum kennurum. Á síðustu áratugum hefur athygli fræðimanna beinst að faglegu sjálfstrausti fagmanna, mikilvægi þess og áhrifum á líðan þeirra í starfi, möguleika þeirra til starfsþróunar, og hvað kennara varðar, að gagnkvæmum áhrifum skólastjórnunar og námsframvindu nemenda (Goddard, o’Brien og Goddard, 2006; Bouwers og Tomic, 2000; Woolfolk og Hoy, 1993). Kenningar þessar, og niðurstöður rannsóknanna sem þær byggjast á, sýna hve mikilvægt er fyrir kennara að ná að byggja upp gott faglegt sjálfstraust í byrjun starfsferils síns, og að halda því þegar breytingar verða á verkefn- um þeirra eða starfsumhverfi. Rannsóknin byggist á kenningum sem Woolfolk Hoy og félagar hennar hafa þróað um faglegt sjálfstraust kennara (teacher efficacy) (Hoy og Woolfolk,1993; Woolfolk Hoy, 2000), sem aftur grundvallast á skilgreiningu Bandura (1997; 1986) á faglegu sjálfstrausti (self-efficacy), sem hann telur að hafi áhrif bæði á líðan starfsmanns og það hvernig hann innir verk sín af hendi. Spurningalistinn sem notaður er til að meta faglegt sjálfstraust kennara er byggður upp af undirþáttunum bekkjarstjórnun, kennsla og hvatning. Þar er leitað svara við því hversu færan kennarinn telur sig um að hafa stjórn á nemendum sínum, hvernig hann álítur kennsluhætti sína vera og hvernig hann telur sér ganga að hvetja nemendur sína til náms. Niðurstöðurnar um faglegt sjálfstraust eru síðan tengdar við kulnun og fleiri þætti sem skoðaðir voru í rannsókn- inni og birtar niðurstöður um í fyrri greinum (Anna Þóra Baldursdóttir og valgerð- ur Magnúsdóttir 2007a; 2007b). Sett er fram líkan sem sýnir tilgátur um tengsl milli þeirra þátta sem rannsakaðir voru, þ.e. kulnunar, faglegs sjálfstrausts, bakgrunnsþátta og vinnustaðarþátta. Einnig er rætt um hugsanleg tengsl við fleiri atriði sem þó voru ekki hluti rannsóknarinnar. Niðurstöður eru svo reifaðar út frá þessu líkani. KEnningar um faglEgt sjálfstraust fyrir um 30 árum voru fyrst settar fram hugmyndir um að faglegt sjálfstraust kenn- ara hefði mikil áhrif á námsframvindu nemenda (t.d. Woolfolk Hoy og Burke Spero, 2005). Það hefur síðan einnig verið tengt mörgum öðrum mikilvægum þáttum í skóla- starfi, svo sem áhuga nemenda, innleiðingu kennara á nýjungum og aðferðum þeirra við bekkjarstjórnun. Skilgreining Bandura á hugtakinu snýst um „faglegt sjálfstraust til að skipuleggja og framkvæma þá aðgerð sem þarf til að ná tilætluðum árangri“ (Bandura 1986, bls. 391). Í hugtakinu felst að um er að ræða sértæka aðgerð og sérstakan árangur. Þegar faglegt sjálfstraust kennara er metið er kennarinn spurður um verkefni sín á þeim tíma sem matið fer fram og hvaða árangri hann sjálfur telur sig ná með þau. Band- ura segir að það hvernig einstaklingur skynjar faglegt sjálfstraust sitt hafi ferns konar áhrif á hann, það er að segja áhrif á a) tilfinningalega líðan hans, b) hugsun hans

x

Uppeldi og menntun

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.