Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Qupperneq 73

Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Qupperneq 73
73 vALGERÐUR MAGNÚSDÓTTIR, ANNA ÞÓRA BALDURSDÓTTIR Síðan Bandura setti fram kenningar sínar hafa menntarannsóknir staðfest sterk tengsl milli faglegs sjálfstrausts kennara og árangurs og áhuga nemenda (Hipp og Bredeson, 1995). Hoy og Woolfolk (1993) gera ráð fyrir gagnkvæmu hringrásarsam- bandi í báðar áttir þarna á milli, þannig að gott faglegt sjálfstraust kennarans auki árangur og áhuga nemenda hans, og einnig séu áhrif á hinn veginn, þannig að góður árangur og áhugi nemenda auki faglegt sjálfstraust kennarans. Lélegt faglegt sjálfs- traust kennarans dregur á sama hátt úr árangri og áhuga nemenda. Brouwers og Tomic (2000) komust að því að viðvarandi truflandi hegðun nemenda í bekk getur dregið úr faglegu sjálfstrausti kennara, og aukið líkur á kulnun, sem aftur eykur trufl- andi hegðun í bekk og dregur enn úr faglegu sjálfstrausti kennarans. Styðja þessar niðurstöður áðurnefnt hringrásarsamband. faglegt sjálfstraust kennara hefur einnig verið sett fram sem „trú kennarans eða sannfæring um að hann geti haft áhrif á það hversu vel nemendur læri, jafnvel þeir sem teljast erfiðir og áhugalitlir“ (Guskey og Passaro, 1994, bls. 4). Hæfni kennara til þess að hafa stjórn á bekk er mikilvæg í námi og kennslu, annars tapast kennslutími fyrir alla nemendur, ekki bara þá sem trufla. Bekkjarstjórnun kennara er því grund- vallaratriði eigi að ná markmiðum um uppeldi og menntun. Sé hún ónóg er líklegt að hringrásin verði neikvæð, og það getur leitt til minnkandi faglegs sjálfstrausts og kulnunar sé ekkert að gert (Brouwers og Tomic, 2000; friedman og farber, 1992). Hjá Goddard, o’Brien og Goddard (2006) kemur fram að skuldbinding við starf, þ.e. vinnugleði, skýr hlutverk, stjórnun og stuðningur samstarfsmanna, hefur áhrif á líðan kennara og faglegt sjálfstraust þeirra. Svipaðar niðurstöður koma fram í rann- sókn höfunda þessarar greinar (Anna Þóra Baldursdóttir og valgerður Magnúsdóttir, 2007a, 2007b). Kennaranám, fyrstu skref í starfi og faglegt sjálfstraust Hoy og Woolfolk (1993) telja óraunhæft að ætla að menntastofnun geti brautskráð kennara með vel mótað faglegt sjálfstraust. Raunhæfara markmið sé að styðja kenn- aranema í að þróa hæfileika sína og þekkingu til að mæta því sem búast megi við í daglegu starfi kennarans, en erfitt sé að fullyrða um bestu leiðina til þess. Und- irbúningur þeirra ætti þó að fela í sér sértæk námskeið og þjálfun í bekkjarstjórnun, tækifæri til að nota hæfni sína í að beita kenningum til að leysa algeng vandamál, og handleiðslu sem byggir upp faglegt sjálfstraust og hæfni til að takast á við verkefni í daglegu starfi kennarans. Í rannsókn þeirra var lengdin á námi kennara eini einstakl- ingsbundni þátturinn sem spáði alltaf fyrir um faglegt sjálfstraust þeirra. Ætla má að því lengra sem námið er þeim mun meiri þekkingu og reynslu hafi þeir í bekkj- arstjórnun í upphafi starfsferils síns. María Steingrímsdóttir (2005) rannsakaði hvað nýbrautskráðir kennarar frá Háskól- anum á Akureyri og Kennaraháskóla Íslands segja um fyrsta starfsár sitt við kennslu og hvernig þeir telja að skólarnir hafi búið þá undir starfið. Þeir segja lítið sem ekk- ert haldið utan um nýja kennara þegar þeir koma til starfa og telja sig þurfa meiri stuðning en þeir fá á fyrsta starfsári. Til að þeim vegni vel þurfi þeir mikla leiðsögn og stuðning, bæði í faglegum og hagnýtum þáttum starfsins, sem og handleiðslu sem styður og byggir upp varnir gegn álagi og streitu í starfi. Niðurstöður Woolfolk Hoy
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80
Qupperneq 81
Qupperneq 82
Qupperneq 83
Qupperneq 84
Qupperneq 85
Qupperneq 86
Qupperneq 87
Qupperneq 88
Qupperneq 89
Qupperneq 90
Qupperneq 91
Qupperneq 92
Qupperneq 93
Qupperneq 94
Qupperneq 95
Qupperneq 96
Qupperneq 97

x

Uppeldi og menntun

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Uppeldi og menntun
https://timarit.is/publication/581

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.