Uppeldi og menntun - 01.01.2008, Side 89
89
GUÐMUNDUR hEIÐAR fRÍMANNSSoN
Siðferðilegt uppeldi og menntun
Sigrún Aðalbjarnardóttir (2007). Virðing og umhyggja.
Ákall 21. aldar. Reykjavík: Heimskringla. 537 bls.
Á síðasta ári kom út bók eftir Sigrúnu Aðalbjarnardóttur, prófessor við HÍ, sem nefnist
Virðing og umhyggja. Bókin er mikil að vöxtum og Sigrún fer yfir mikið efni. Þeir sem
til þekkja vita að Sigrún hefur verið athafnasöm í rannsóknum lengi og sömuleiðis
hefur hún leitast við að tengja rannsóknir sínar við vettvang skólanna. Í þessari bók
dregur hún saman þræðina úr vinnu sinni síðustu tvo áratugina eða svo og lesandi
fær yfirlit yfir rannsóknir hennar, tilgang þeirra og markmið, bakgrunn og þróun.
Efni bókarinnar er margþætt og ekki alltaf alveg einfalt en höfundur leggur sig í fram-
króka við að setja það skýrt og skipulega fram. Það tekst Sigrúnu afar vel og lestur bókarinnar ætti ekki að vera nokkrum lesanda ofraun.
En hvert er efni bókarinnar og hvað leitast höfundurinn við að segja um það? Það
má orða það svo að bókin snúist um siðferðilegt uppeldi, hvað gerir barn að góðri
manneskju. En það verður að hafa þann fyrirvara á þessu orðalagi að höfundurinn
segir þetta ekki beinlínis svona. Í upphafi gerir Sigrún grein fyrir tilgangi sínum með
bókinni, rekur ástæður sínar fyrir því að líta svo á að samskiptahæfni skipti æ meira
máli í samfélagi samtímans, hún skýrir nokkur lykilhugtök og efnistök sín í bókinni.
Bókin skiptist í sex hluta. Í fyrsta hlutanum sem nefnist „Sýn nemenda og kennara á
samskipti í skólastarfi“ er rætt um hvað góður kennari sé frá sjónarhorni fullorðinna
og barna og hver eru viðhorf kennara til samskipta við nemendur. fyrsti hlutinn er
eins konar inngangur að meginefni bókarinnar þar sem höfundurinn skoðar samskipti
út frá sjónarmiðum nemenda og kennara en samskipti eru aðalviðfangsefni Sigrúnar.
önnur viðfangsefni hennar tengjast öll samskiptum á einhvern hátt.
Annar hluti bókarinnar snýst um gildi. Sigrún gerir grein fyrir greiningu sinni á
þeim gildum sem birtast í frásögnum kennara og nemenda sem hún hefur safnað.
Gildi birtast í því sem við hugsum, segjum og gerum. Hún finnur í þeim mörg gildi
og margvísleg en tvö gildi telur hún mikilvægari en önnur: virðingu og umhyggju.
virðing getur ýmist beinst að manni sjálfum eða öðrum, hún felst í aðalatriðum í því
að hlusta á og taka mark á sjónarmiðum annarra og leyfa þeim að stýra eigin lífi svo
framarlega sem þeir stefna ekki sjálfum sér í glötun. Sjálfsvirðing sem er sá hluti virð-
ingarinnar sem snýr að manni sjálfum hlýtur að vera öðruvísi. Það hefur enga merk-
ingu til dæmis að leyfa sjálfum sér að stýra eigin lífi. vandinn er sá að þegar sá sem
Uppeldi og menntun
17. árgangur 1. hefti, 2008