Fréttablaðið - 30.09.2010, Side 12

Fréttablaðið - 30.09.2010, Side 12
12 30. september 2010 FIMMTUDAGUR LANDSDÓMUR: Viðbrögð Atla Gíslasonar og Ingibjargar Sólrúnar Gísladóttur Atli Gíslason, formaður þing- mannanefndarinnar um rann- sóknarskýrsluna, segir að sak- sóknari og varasaksóknari í máli Alþingis gegn Geir H. Haarde verði valinn eftir helgi. „Það er auðvitað búið að tala við fólk en það er ekkert afráðið. Það koma ýmsir til greina,“ segir Atli. Hann segir miður að gagnmerk skýrsla sem rannsóknarnefnd- in vann um það sem betur mætti fara í stjórnsýslunni hafi fallið í skuggann af málshöfðunartillög- unni. Það sama megi segja um þingsályktunina sem var í kjöl- farið samþykkt einróma á þingi. „Þegar fram í sækir mun skýrslan – og þingsályktunin – vekja meiri athygli, því hún er framtíðarsýn Alþingis. Hún er það sem stendur upp úr í þessu. Þar er tekið fast á hlutum og rýnt til gagns,“ segir Atli.“ Meðal annars af þessum sökum svíði sú gagnrýni sem hann, og aðrir sem störfuðu fyrir nefnd- ina, hafi þurft að sæta, meðal ann- ars frá Jóhönnu Sigurðardóttur og Geir H. Haarde, sem sagði meðal annars að svo virtist sem pólit- ískir óvitar hefðu tekið þátt í að semja ákærurnar á hendur ráð- herrum. „Ummæli um að maður hafi beitt pólitískum aðferðum en ekki málefnalegum eru mjög ómak- leg,“ segir Atli. „Ég hef unnið þetta algjörlega eftir lögfræði- legum aðferðum og notið aðstoð- ar mjög góðra sérfræðinga. Svo er látið að því liggja að maður sé í einhverjum hernaði og hefnd og öðru slíku. Allt dæmir þetta sig sjálft. Ég vil ekki fara niður á þetta plan.“ Atli er á leið í nokkurra vikna launalaust leyfi frá og með 1. október. „Ég hef ekki tekið mér frí í bráðum níu mánuði. Þetta er búið að vera mjög strembið og hefur reynt bæði á mig og mína fjölskyldu,“ segir hann. - sh Atli Gíslason segir ýmsa koma til greina til að sækja mál á hendur Geir Haarde: Saksóknari valinn eftir helgi DAPURLEGT Ingibjörg Sólrún segist leyfa sér að trúa því að þingmenn sem greiddu því atkvæði að ákæra fyrrverandi ráðherra fyrir landsdómi hafi ekki áttað sig á því inn á hvaða braut þeir hafi verið að fara. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Niðurstaða meirihluta Alþingis um að höfða beri mál á hendur Geir H. Haarde, fyrrverandi forsætisráð- herra, er pólitísk ákæra sem á sér pólitískar rætur, segir Ingibjörg Sólrún Gísladóttir, fyrrverandi utanríkisráðherra og formaður Samfylkingarinnar. „Mér finnst felast í þessari nið- urstöðu pólitísk uppgjöf. Það er eins og þingmenn telji að hægt sé að gera upp flókin pólitísk álita- efni með útgáfu ákæru,“ segir Ingibjörg Sólrún. Hún segir ákvarðanir stjórn- málamanna alltaf byggjast á mati á aðstæðum. Það mat reynist stund- um rangt, og ákvarðanir stjórn- málamanna orki alltaf tvímælis. Þess vegna eigi að takast á við þau mál á vettvangi stjórnmálanna, ekki inni í réttarsal. „Ég er þeirrar skoð- unar að það hafi ekki átt að ákæra neinn, og þess vegna er alls ekki ásætt- anlegt að Alþingi hafi ákveðið að ákæra skuli Geir einan,“ segir Ingi- björg. Hún bendir á að ákær- an byggi á því að Geir hafi vísvitandi eða af stórkostlegu hirðuleysi ekki gætt hagsmuna almennings og þar með valdið stórfelldu tjóni. Það fái ekki staðist. Ákæruatrið- in séu svo óljós að útilokað sé að Geir verði sakfelldur á grundvelli þeirra. Ingibjörg gagnrýnir þingmenn harðlega fyrir að hafa ekki séð ástæðu til að ræða bréf sem hún sendi öllum þingmönnum þar sem ákæruatriðunum var andmælt. „Þeir vildu ekki heyra það sem við höfðum fram að færa, þeir voru búnir að ákveða hver niðurstaðan ætti að vera. Þess vegna var þetta pólitísk ákvörðun.“ Ingibjörg tekur fram að með þessu sé hún ekki að segja að sér og öðrum ráðherrum í ríkisstjórn Geirs hafi ekki orðið á mistök. Á því beri þau pólitíska ábyrgð og bæði hún og Geir hafi axlað þá ábyrgð. Það sé rangsleitni að ákæra Geir fyrir landsdómi. „Ég óttast að ákæran eigi eftir að skapa hatursfullt andrúmsloft á Alþingi. Þingmenn sem studdu tillöguna og beittu Geir þessari rangsleitni eiga ekki annan kost en að forherðast í afstöðu sinni. [...] Það mun skapa eitrað pólitískt andrúmsloft á Íslandi.“ Spurð hvort hún sé fegin að ekki hafi verið samþykkt að höfða mál á hendur henni segir Ingibjörg: „Það er ekki sú tilfinning sem er mér efst í huga. Ég upplifði engan sér- stakan feginleika og enga sérstaka ánægju í gær [á þriðjudag] af því mér fannst þetta fyrst og fremst mjög dapurlegt.“ Spurð um þá þing- menn sem greiddu því atkvæði sitt að ákæra Geir og hana sjálfa segir Ingibjörg: „Ég vil leyfa mér að trúa að þeir hafi ekki áttað sig á því inn á hvaða braut þeir voru að fara.“ Ingibjörg segist afar ósátt við frammistöðu Steingríms J. Sigfús- sonar, formanns Vinstri grænna, og annarra þing- manna þess flokks. „Ég held að þetta hafi verið flokkspólitísk ákvörð- un hjá þeim að fara inn í þetta ferli. Því hlýtur formaður- inn að stýra.“ Hún segir að ekki þurfi að gera annað en að horfa á hvern- ig atkvæði þingmanna Samfylk- ingarinnar hafi fallið til að sjá að þar hafi ekki verið mörkuð flokks- pólitísk stefna heldur ákvörðunin í höndum hvers og eins þingmanns. Hún geti tekið undir skynsam- leg orð Jóhönnu Sigurðardóttur í umræðum um málið á Alþingi. Pólitísk upp- gjöf Alþingis Ingibjörg Sólrún Gísladóttir segir ákvörðun Alþingis um að höfða mál á hendur Geir H. Haarde sprottna af pólitískum rótum. Ákæruatriðin séu svo óljós að engar líkur séu á sakfellingu. Hún segir að ákæran muni eitra pólitískt andrúmsloft á Íslandi. Ég óttast að ákæran eigi eftir að skapa hatursfullt andrúmsloft á Alþingi. INGIBJÖRG SÓL- RÚN GÍSLADÓTTIR FYRRVERANDI FORMAÐUR SAMFYLKINGAR- INNAR Dagskrá 09.00 Skráning. 09.30 Formaður Landssambandsins – Drífa Hjartardóttir, setur fundinn. Formaður Sjálfstæðisflokksins – Bjarni Benediktsson, ávarpar þingið. 10.00 - 10.20 Skuldavandi íslenskra heimila – Ásta Sigrún Helgadóttir, umboðsmaður skuldara. 10.30 - 10.55 Úrræði stjórnvalda – Unnur Brá Konráðsdóttir, alþingismaður. 11.00 - 11.20 Hagsmunir heimilanna – Ragnheiður Ríkharðsdóttir, alþingismaður. 11.20 - 11.45 Leitin að lausnum – Hanna Birna Kristjánsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borgarstjórn Reykjavíkur. 12.00 - 13.30 Hádegisverður í Hlégarði Í hádeginu kynna mosfellskar athafnakonur sig og verk sín. 13.30 - 14.30 Staða efnahagsmála, stefna Sjálfstæðisflokksins – Ólöf Nordal, varaformaður Sjálfstæðisflokksins. 14.30 - 14.45 Tækifæri í kreppu, nýsköpun í íslenska hagkerfinu – Áslaug Friðriksdóttir, varaborgarfulltrúi og framkvæmdastjóri. 14.45 - 15.10 Nýting auðlinda – Jón Gunnarsson, alþingismaður. 15.10 - 15.30 Fjármögnun íslenskra fyrirtækja – Hrefna Ösp Sigfinnsdóttir, fjárfestingarstjóri hjá Arev verðbréfafyrirtæki. 16.30 Sjálfstæðiskonur í Mosfellsbæ bjóða í móttöku á Gljúfrasteini. 19.00 Glæsilegt hlaðborð í Hlégarði. Veislustjóri Ragnheiður Ríkharðsdóttir. Hátíðarræðu kvöldins flytur Brynhildur K. Andersen, húsmóðir í stjórn LS. Edda Borg Ólafsdóttir syngur við undirleik Illuga Gunnarssonar alþingismanns. Sjálfstæðisflokkurinn Fundarstjórar: Aldís Hafsteinsdóttir, bæjarstjóri í Hveragerði og Herdís Sigurjónsdóttir, bæjarfulltrúi í Mosfellsbæ. Þinggjald: 1.500 kr. Skráning: xd@xd.is og í síma 515 1700. Haustþing Landssambands sjálfstæðiskvenna, laugardaginn 2. október í Hlégarði, Mosfellsbæ Byggjum upp til framtíðar Brjánn Jónasson brjann@frettabladid.is Svo er látið að því liggja að maður sé í einhverjum hernaði og hefnd og öðru slíku. Allt dæmir þetta sig sjálft. Ég vil ekki fara niður á þetta plan. ATLI GÍSLASON FORMAÐUR ÞINGMANNANEFNDARINNAR

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.