Morgunn - 01.06.1932, Side 35
MORGUNN
29
ai’málin, og bar þar fátt á milli, en hann vildi ekki kann-
sst við það, að spíritisminn hefði gert kirkjunni á Eng-
landi annað en ógagn; þó var þessi maður elskulegur og
stilltur öldungur og hafði þess utan verið nákunnugur
Myers. Þótt yfirgnæfandi meiri hluti ensku prestanna
tjái sig opinberlega andvíga spíritismanum, þá er hitt jafn
víst fyrir því, að boðskapur hans um eilífðarmálin er mjög
farinn að móta kenningar kirkjunnar um þessi efni. Spurn-
mgunum hefir fjölgað, og gamla þögnin er ekki lengur
fekin gild, og um allan heim sjáum við fólk, sem ekki vill
eða á þess kost að svala þorsta sínum eftir þekkingu á
andlega heiminum og því, sem við oss tekur eftir dauða
líkamans. Á leiðum spíritismans um allan hinn kristna
heim sjáum vér þetta fólk leita þrá sinni svölunar í boð-
skap og sýnum hins mikla indverska sjáanda, Sundars
Singh, en sú staðreynd, að hvergi muni bækur hans lesn-
ar af meiri ákefð en á Englandi, bendir óneitanlega til
Þess, að ekki muni þorstinn síður vakandi þar en annars
staðar, og enda þótt ensku prestarnir geri sér þess ekki
fulla grein, þá er það víst, að f jölda-margir þeirra — þó
teir séu ekki spiritistar, — svala þorsta kirkjugestanna
^eð þeim boðskap spiritismans, sem er að gegnsýra hug-
^uyndir manna um eilífðai'málin.
Mótmælendakirkjan á Þýzkalandi er aftur á, móti
ekki eins opin fyrir áhrifum sálarrannsóknanna. — Mér
Þóttu prédikanir þýzku prestanna yfirleitt óaðgengilegar,
°g þegar eg sagði einu sinni við vin minn íslenzkan, að
vissi ekki almennilega hvað mig vantaði í þær, þá varð
kann fljótur til svars og sagði: „Hvernig áttu að geta
Verið ánægður með þá prédikunarstarfsemi, sem aldrei
^nnnist á það, að þú lifir, að þú lifir og starfir eftir að
skrokkurinn er dauður?“ Og eg fann fljótt, að það var
þetta, sem mig vantaði. Páskarnir eru ekki prédikaðir þar
fyrst og fremst sem sönnun þess, að sálin lifi líkamsdauð-
ann, heldur er þeim ætlað annað hlutverk; þeir eiga að
sanna mönnunum það, að Kristur hafi verið guðssonurinn,