Morgunn - 01.06.1932, Qupperneq 57
MORGUNN
51
nú sjá margt fólk, er væri með honum. „Það virðist vera
í önnum, það er einhver asi á því, mér virðist helzt, að
það sé að búa hann út í eitthvert ferðalag. Mér finnst
hann muni hafa farið þá ferð á sjó og hann tekur það sér-
staklega fram, að frá sinni hálfu hafi miklar vonir verið
tengdar við það ferðalag“. Þetta er sömuleiðis nákvæm-
lega rétt. Hann á hér við ferðalag sitt til dvalar á sjúkra-
húsi Seyðisfjarðar. Eg var nokkuð riðinn við það ferða-
lag, en við það eru síðustu samveruminningar okkar
tengdar. Eg hafði ætlað mér að heimsækja hann síðar um
vorið, en fáum dögum áður en eg gat komið því í fram-
kvæmd frétti eg lát hans. Frú Guðrún sagði, að honum
væri mjög ant um að geta þess, að samverustundir okkar
hefðu átt mikinn þátt í því að létta sér umskiftin. Hann
hefði verið fljótari að átta sig, og hefði átt auðveldara
með að skilja hina nýju tilveru, er hann hefði fluzt yfir í.
Eg skil þessi ummæli hans svo, að hann eigi hér við sam-
ræður okkar um eilífðarmálin og samband við undanfarna
vini, er við einatt ræddum um, og mér skilst, að með þess-
um ummælum vilji hanri benda öðrum á, hversu öll þekk-
ing á þeim málum sé mönnum gagnleg og hagkvæm, áður
en þangað er komið. Honum var það fyllilega ljóst, áður
en hann fór héðan, hvers virði endurminningasannanirn-
ar frá umliðnum samverutíma eru fyrir eftirlifandi ást-
vini, enda leggur hann aðaláherzluna á það, að draga fram
liðin atvik úr jarðlífi sínu, og frá mínu sjónarmiði virð-
ist mér að tilraunir hans í þá átt hafi heppnast ágætlega.
Við skiftumst að lokum á nokkrum orðum, en þær
samræður snerust eingöngu um einkamál okkar, liðnar
samverustundir og afstöðu okkar hvors til annars. En þó
eg hlyti gegnum þær ýmsar sannanir þess, að hann
hefði engu gleymt, þá hirði eg ekki um að tilfæra það, er
hann sagði þá við mig, því þær hafa aðeins sannanagildi
fyrir mig sjálfan; eg gleymi þeim aldrei eigi að síður. Þær
sannfærðu mig engu síður um nálægð undanfarins vin-
ar en það, er eg hefi nú verið að segja ykkur frá. Eg fann
4*