Morgunn - 01.06.1932, Qupperneq 80
74
MORGUNN
ugar rannsóknir á miðli, sem heitir John C. Sloan og á
heima í Glasgow.
Þessi miðill er mjög lítt kunnur, að því er höfund-
ur segir. Hann er verkamaður í Glasgow, sem stundar
vinnu sína á hverjum degi frá1 kl. 7. að morgni til 6 að
kvöldi, og heldur svo annað veifið fundi heima hjá sér.
Atvinnumiðill er hann ekki, þar eð hann vill aldrei
taka við borgun fyrir starf sitt. Hann telur það skyldu
sína að gefa mönnum kost á að komast í samband við
framliðna vini sína, úr því hann er gæddur þeim hæfi-
leikum, sem gjöra það kleift. Stundum leiðist honum
heima í Glasgow og þá fer hann til sjós með langferða-
skipum, og yfirleitt lætur hann ákaflega lítið yfir sér
og hæfileikum sínum, að því er höfundur segir.
Höfundur segir sérstaklega frá raddafundum þeim,
sem hann hefir verið á hjá Mr. Sloan. En auk þess sem
hann er raddamiðill, gerast all-flest önnur venjuleg mið-
ilsfyrirbrigði hjá honum. Hann er skygn og hann er gædd-
ur dulheyrn, hlutir færast úr stað án þess að við þá sé
komið (telekinesis), og hlutir flytjast inn á fundi hjá
honum á dulrænan hátt (apports).
Mr. Findlay hefir leitað sér all-mikilla upplýsinga
frá framliðnum mönnum, sem hann hefir átt tal við hjá
Mr. Sloan, um hvernig þeir framleiði beinu raddirnar,
og segir hann frá' því í bókinni. Annars er nokkuð mik-
ill hluti bókarinnar skýringar á ýmsum grundvallarat-
riðum, sem nauðsynlegt er að hafa þekkingu á, þegar
menn fara að kynna sér miðilsfyrirbrigði, en vegna þess
að margt af því, sem þar er skýrt frá, er frekar ætlað
þeim, sem að meiru eða minna leyti eru ókunnugir sál-
arrannsóknum nútímans, en flestum yðar er vel kunn-
ugt um þær, tel eg óþarfa að eyða miklum tíma í að segja
frá því, en ætla heldur að segja greinilegar frá öðrum
köflum, sem ýms fróðleikur felst i. Það kann auðvitað
að vera, að mörg yðar hafi heyrt ýmislegt af því áð-